All season dekk

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

All season dekk

Postby Einarsss » Fri 27. Jul 2007 21:27

Sælir, Ég er að spá í panta felgur að utan ásamt heilsársdekkjum. Planið var að panta með vetrardekkjum en það er ekki til í 275/35/18 pjúra vetrardekkjum :?

Ég hef aldrei notað heilsársdekk að vetri til og ég er að spá hvort þetta virki e-ð í hálku eða snjó? þá sérstaklega svona dekk?

Kumho Ecsta ASX eru dekkin sem ég myndi sennilega taka með


Tirerack gefur upp þessa einkunn : UTQG: 420 AA A og 4 stjörnur af 5 í warranty.

Er maður safe svo lengi sem maður leggur ekki af stað þegar það eru stórir skaflar og mikill snjór úti?
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby crashed » Fri 27. Jul 2007 22:04

ég var með toyotu einu sinni á svona dekkjum (veit að það er ekkert lígt bmw) og það kom bara vel útt
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík

Postby Bjarki » Fri 27. Jul 2007 22:05

Virkar mjög vel.
Ég hef bara notað nagladekk einn vetur og það var veturinn '98
Síðan heilsársdekk eða sumardekk í mjög misjöfnu ástandi.
Mjög sjaldan fest mig og aldrei lent í neinu.
Þetta snýst allt um hæfileikana 8)
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby crashed » Fri 27. Jul 2007 22:10

var síðasta vetur á mjög svo lélegum sumardekjum á gamla bamba og ég festi mig 1 sinni og það var á bílastæðinu heima hjá mér enda var allt á kafi í snjó þá
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík

Postby jon mar » Fri 27. Jul 2007 22:39

ég held að vera á einhverjum heilsársdekkjum sé engin lausn í hálku og snjó.

Held að bíllinn sé meira virði en svo......

Loftbóludekk eða bara eitthvað með mjúku gúmmí og grófu mynstri
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

Postby srr » Sat 28. Jul 2007 00:30

Í þessari stærð.....klárlega Michelin Pilot Alpin PA2 eða Michelin X-Ice

Michelin Pilot Alpin PA2 er heilsársdekk en
Michelin X-Ice er naglalaust vetrardekk

Hvoru tveggja míkróskorin og mjúk/gripmikil dekk.
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby Tommi Camaro » Sat 28. Jul 2007 02:55

srr wrote:Í þessari stærð.....klárlega Michelin Pilot Alpin PA2 eða Michelin X-Ice

Michelin Pilot Alpin PA2 er heilsársdekk en
Michelin X-Ice er naglalaust vetrardekk

Hvoru tveggja míkróskorin og mjúk/gripmikil dekk.

og kosta augu og útlimi
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Postby srr » Sat 28. Jul 2007 09:14

Tommi Camaro wrote:
srr wrote:Í þessari stærð.....klárlega Michelin Pilot Alpin PA2 eða Michelin X-Ice

Michelin Pilot Alpin PA2 er heilsársdekk en
Michelin X-Ice er naglalaust vetrardekk

Hvoru tveggja míkróskorin og mjúk/gripmikil dekk.

og kosta augu og útlimi

Ef menn eru á annað borð að keyra um á svona stærðum....þá hljóta þeir að hafa gert ráð fyrir því :wink:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby Jónas » Sat 28. Jul 2007 18:18

Kumho er toppurinn.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby srr » Sat 28. Jul 2007 19:23

Jónas wrote:Kumho er toppurinn.

:roll:

You should know better than that :wink:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

dekk

Postby Hrannar » Sat 28. Jul 2007 19:50

Ég er með Toyo Garret G30 sem eru harðskeljadekk.
Það eina er að þau eru sleip í bleytu, en það er bara gaman :lol:
User avatar
Hrannar
Kassabílstjóri
 
Posts: 235
Joined: Fri 11. Apr 2003 11:03

Postby Jónas » Sun 29. Jul 2007 11:41

srr wrote:
Jónas wrote:Kumho er toppurinn.

:roll:

You should know better than that :wink:


eftir að hafa keyrt nokkra tugi bíla á michelin vs kumho þá get ég sagt að verðmunurinn er ekki réttlátur ;)
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby bimmer » Sun 29. Jul 2007 12:22

Dunlop M3 Wintersport er málið.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Tommi Camaro » Sun 29. Jul 2007 12:24

keðjur og naglar eru alveg að detta inn
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Postby Svessi » Mon 30. Jul 2007 04:17

Eitt sem mig langar til að benda á strax er að passa þig á þessu sem bandaríkjamaðurinn kallar All Season tires.
Því sumt af þessum All Season dekkjum eru í raun bara þokkaleg sumardekk fyrir okkur íslendinga og ekkert meira. Og notabene, ég er ekki að íkja þetta.

Án þess að ég ætli mér að móðga nokkur hérna þá er mín skoðun sú að dekk séu undirstaða ökutækisins, því án dekkja fer bíllinn ekkert.
Og við búum á íslandi og eru ekki það lánsöm að geta notað sömu góðu sumardekkin allann ársins hring.

Mér hefur líka alltaf þótt það vera jafn undarlegt þegar fólk er á nokkra milljón króna bílum og kaupir svo eins ódýr dekk og það getur undir þá án þess að hugsa um gæði eða öryggi, og svo ég tali nú ekki um akstureiginleika.

Þótt veturnir undanfarin ár hafa verið að "styttast" og snjór minkað þá snjóar samt sem áður öðru hverju. Þessvegna vil ég ég eiga tvo ganga af dekkjum, góð sumardekk og svo góð vetrardekk.

Ég er pínulítið á móti All Season / Heilsárs- dekkjum því mín skoðun er sú að maður er aldrei á bestu dekkjum við aðstæður. Á sumrin ertu bara á sæmilegum dekkjum, oft á tíðum of grófum dekkjum. Svo á veturna þá er ertu ekki á bestu dekkjum miðað við aðstæður.
Einnig hefur það líka brunnið dálítið við að fólk sem ekur um á Heilsársdekkjum nota dekkin þangað til þau eru búin, og eru þá oft á tíðum að keyra á dekkjum sem eru orðið nokkuð mikið slitin.

Samkvæmt undirskriftinni þinni ertu á E39 M5 - 400 hp tæki og ætlar þær að fara kaupa þér 18" felgur og svo heilsárdekk á það!!!
Ég myndi segja þér að kaupa þér góð performance sumardekk á svoleiðis felgur í þessari stærð. Fáðu þér svo aðrar ódýrar t.d. 16" felgur og góð vetrardekk á þær.
Og hingað til hef ég ekki hrópað mikið húrra fyrir dekkjum með mjög lágann lowprofil í snjó og hálku.

Ég hef ekkert á móti Kumho, ágætis dekk og yfirleitt með þeim ódýrari sem maður kærir sig um. Ég hef sjálfur ekið um á Kumho sumardekkjum og var mjög sáttur við þau. Kumho er yfirleitt með dálítið mjúk dekk. Einnig eru flest Heilsársdekk mjúk, það er yfirleitt betra í snjó og hálku (þótt það séu til vetrardekk sem eru hörð). En mjúk dekk eyðast hraðar upp en hörð og á 400 hp M5 að sumri til þá myndi ég halda að þú værir fljótur að klára svona dekk.

Persónulega finnst mér þessi Kumho dekk sem þú bendir á ekki nógu mikið micro-skorinn fyrir minn smekk fyrir vetrarakstur. Bestu vetrardekk sem ég hef ennþá hitt á eru Nokian Hakkapeliitta, fást í Max1. Ég vil hafa mín vetrardekk nelgd (enda á ég engin börn ennþá) enn einnig er hægt að fá þau ónelgd.

Berið bara þessi dekk saman:

Kumho Ecsta ASX
Nokian Hakkapeliitta

Vona að ég hafi náð mínum punkti nægilega vel framm.

P.s. Fyrst þú nefnir að þú sért búinn að skoða tirerack þá dreg ég þá ályktun að þú sért að spá í að pantað að utan.

Ég get alveg mælt með því, því ég hef sjálfur gert það.
Mæli reyndar með síðunni www.discounttire.com líka, ég pantaði allavega þaðann og lét svo shopusa flytja þau inn fyrir mig.

Sennilega allir sem kunna þetta í dag en fyrir þá sem ekki vita þá fer maður fyrst niður í VÍSA eða Mastercard, fer eftir því með hverju maður ætlar að borga. Biður um að láta addressuna hjá shopusa í bandaríkjunum vera 2nd address á kreditkortinu sínu, allavega hjá VÍSA er það ekkert mál. Pantar svo dótið af síðunni og setur inn addressuna í bandaríkjunum sem heimilsfangið sitt. Ferð svo inn á shopusa síðuna og skráir að þú hafir pantað vöruna og færð svo e-mail þegar þeir hafa fengið vöruna og sirka hvenær þú færð vöruna á íslandi.

Allavega þegar ég gerði þetta þá borgaði ég um 25 þús kr ísl fyrir 4 dekk, borgaði svo svipaða upphæð í tolla og afgreiðslugjöld hjá shopusa (reyndar allt í einni upphæð, óflokkað hversu mikið hvað var) semsagt enduðu í sirka 50 kalli dekk sem hefðu kostað um 100 kall hérna heima.

Svo er auðvitað bara spurning um að fá sér 18" dekkin, góð sumardekk og svo keðjur yfir allt saman á veturnar eins og Tommi stakk uppá. :P
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 42 guests