Gangtruflanir í E36 318is

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Gangtruflanir í E36 318is

Postby Gunni » Fri 27. Jul 2007 00:34

Bíllinn minn á við einhver sálræn vandamál að stríða. Ég set einkennin
fram í 3 pörtum hér að neðan:

1. Oft (ekki alltaf) þegar billinn er kaldur og er settur í gang þá startast
hann eðlilega en svo dettur snúningurinn langt niður og rokkar svona
600-1200 sn í skamma stund, en það jafnar sig um leið og maður þrýstir
létt á gjöfina.

2. Þegar maður tekur af stað í 1. gír þá kúgast bíllinn nánast alltaf, nema
ef tekið er MJÖG varlega af stað. Ef ég tek af stað í 2. gír þá virðist þetta
aldrei gerast. Kúgunin kemur þannig fram að hann tekur svona hiksta
kast alveg þangað til maður ýtir á kúplinguna aftur. Þegar hann kemst af
stað þá hættir þetta.

3. Þegar ég tek langar beygjur (t.d. hringtorg) þá missir hann snúning líkt
og ég lýsi í atriði 1, þetta gerist sérstaklega þegar hann er kaldur.

Ég hef fengið uppá stungur um að þetta gæti verið bensínsía, kerti og
kannski háspennukefli.

Mig langaði að athuga hvort einhverjir gætu komið með vitrænar
hugmyndir um hvað þetta gæti verið, eða hreinlega bara lausn á mínu
vandamáli :)

Ef þið hafið eitthvað til málana að leggja skelliði endilega inn svari.

kv. Gunni
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby _Halli_ » Fri 27. Jul 2007 02:33

Ég þjáist einnig af vandamáli 1 og 2

*edit* Bíllinn, ekki ég
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR
User avatar
_Halli_
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Location: Oslo

Postby elli » Fri 27. Jul 2007 09:14

Ég átti M42 E36 bíl.
Einn daginn fór hann að rokka svona upp og niður í snúning á hægaganginum. Það var vacum leki á soggreininni við inngjafaspjaldið báðu megin.
Fáðu þér bremsuhreinsi og sprautaðu létt á pakkningarsamskeiti og sjáðu hvort hann rýkur upp á snúning, sprautaðu bara lítið því þetta er svo rokgjarn vökvi að of mikið magn getur gefið þér ranga niðurst.
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby crashed » Fri 27. Jul 2007 22:08

vandamál númer 1 er vacom lekki og virðist vera eins og hann sé við á soggreininni við inngjafaspjaldið eða þá að hosan við loftintakið sé með gatti eða eithvað af slöngunum sem teingjast við hann eða þá að hægagangs púngurinn sé að svíkja þig (semsagt lekur)
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests