Nýliðavika á Akstursbrautinni. Ókeypis að mæta alla vikuna.

Hér skal spjalla um BMW.

Langar þig að mæta á Akstursbrautina?

17
52%
Nei
3
9%
Hef þegar ekið þar.
13
39%
 
Total votes : 33

Nýliðavika á Akstursbrautinni. Ókeypis að mæta alla vikuna.

Postby Porsche-Ísland » Mon 23. Jul 2007 08:37

Jæja þá er komið að því að koma upp á braut og leika sér aðeins.
Þessa vikuna er kynning og allir geta komið og fengið að aka ókeypis.
Ökumenn þurfa bara að vera á skoðuðum bíl, ná sér í tryggingarviðauka og mæta með hjálm.

Akstursbraut.is stendur fyrir æfingu í akstursleikni á Miðvikudagskvöldið 25-07-07.
Búið er að leggja braut sem búið er að marka af með keilum og tími tekinn á bílum. Þetta hentar öllum bílum, vélarafl er algjört auka atriði.
Við byrjum kl. 19.00 og verðum fram eftir kvöldi.
Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.
Ekinn er 1 hringir í einu.

Síðan eru leikdagar á Föstudaginn 27-07-07 frá 20.00 og á Sunnudaginn 29-07-07 frá 10.00 um morguninn og fram eftir degi.
Þar eru eknir 5 hringir í einu.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og
þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs.

Fólk er beðið um að aka malarveginn rólega.

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Mæli ég með að menn athugi loft í dekkjum og hvort nóg sé af olíu á vélunum áður en menn mæta og einnig að hafa nóg bensín.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007

Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.

Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.

Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda
né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni -
hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
Halldór Jóhannsson
Porsche 944 Turbo S '89
Porsche 924 Turbo '81
Porsche Boxster S '02
Audi A6 Quattro Avant '96
User avatar
Porsche-Ísland
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 409
Joined: Fri 28. Jan 2005 17:47
Location: Reykjavík

Postby arnibjorn » Mon 23. Jul 2007 09:00

Þetta er mjög sniðugt!

Vonandi að eitthvað nýtt fólk láti sjá sig og taki rönn! 8)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby bimmer » Mon 23. Jul 2007 09:03

Er ekki málið að senda fréttatilkynningu í blöðin til að fá nýtt blóð?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Alpina » Mon 23. Jul 2007 12:33

bimmer wrote:Er ekki málið að senda fréttatilkynningu í blöðin til að fá nýtt blóð?


Sterkur leikur
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Jónas » Mon 23. Jul 2007 20:55

kúl, ég ætla að mæta í fyrsta sinn :)
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby X-ray » Mon 23. Jul 2007 20:58

Spurning hvort menn ná að setja læsta drifið sitt í kerruna.


8) 8) 8) 8) 8)
TXIXXPX XXXTXXX X7X

German Disel power :)

E32 735i '91 SELDUR
Black on Black

Image
X-ray
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 704
Joined: Tue 03. May 2005 14:55
Location: Keflavik

Postby siggir » Mon 23. Jul 2007 21:18

Væri nú gaman að reyna fyrir sér á tercel.. verst að komast ekki á mölina með hann.

X-ray wrote:Spurning hvort menn ná að setja læsta drifið sitt í kerruna.

Settu það frekar í bílinn :tease:
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Postby Jónas » Mon 23. Jul 2007 21:23

er einhver með betri leiðbeiningar um hvernig skal komast þangað?

Er afleggjarinn merktur eitthvað?

Er þetta kvartmíluafleggjarinn?
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby Hlynzi » Mon 23. Jul 2007 21:31

Jónas wrote:er einhver með betri leiðbeiningar um hvernig skal komast þangað?

Er afleggjarinn merktur eitthvað?

Er þetta kvartmíluafleggjarinn?


Beygðu á undan kvartmíluafleggjaranum.
Svo ferðu til vinstri, kemur niður að hringtorgi (beint í gegnum það) þar er merkt - Krísuvíkurvegur, og ekur þangað til þú sérð skillti merkt Bílanaust (með lyklinum, og 1999 ártal)
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby ValliFudd » Mon 23. Jul 2007 21:31

Hér er sjálf brautin:

Image


OG hér er glææææsilega kortið sem ég litaði línur á í MsPaint í fyrra :lol:

Image
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Mon 23. Jul 2007 21:32

Nema, æjj.. það þarf víst að breyta því aðeins.. það er kominn nýr vegur þarna einhversstaðar :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Hlynzi » Mon 23. Jul 2007 21:36

Væri ekki sniðugt til að fá fólk til að rata ef einhver tekur upp mjög svo hraðspólað myndband útum framrúðuna hjá sér frá Reykjanesbrautinni og einföldustu leið inná braut ?
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby Alpina » Mon 23. Jul 2007 21:47

Byrja á að mæta ,,frekar en að ropa og prumpa

MÆTA MÆTA MÆTA
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby X-ray » Mon 23. Jul 2007 22:08

siggir wrote:Væri nú gaman að reyna fyrir sér á tercel.. verst að komast ekki á mölina með hann.

X-ray wrote:Spurning hvort menn ná að setja læsta drifið sitt í kerruna.

Settu það frekar í bílinn :tease:


Það er nú ætlunin :D nóg af spól dekkjum til og læti.
TXIXXPX XXXTXXX X7X

German Disel power :)

E32 735i '91 SELDUR
Black on Black

Image
X-ray
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 704
Joined: Tue 03. May 2005 14:55
Location: Keflavik

Postby Einarsss » Mon 23. Jul 2007 22:27

Það er nú ekki flókið að finna þetta
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests