Skrölt í pústi BMW 320d 2002

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Skrölt í pústi BMW 320d 2002

Postby IngiSig » Fri 20. Jul 2007 12:08

Sælir,
Vantar ráð frá ykkur.
Ég á BMW 320d 2002. Kyrrstæður í hægagangi kemur hrikalegt skrölthljóð í pústinu eins og það sé haugur af skrúfum inní pústinu. Skröltið er farið um leið og ég snerti olíuinngjöfina(nóg að bæta 100-300rpm). Ég fór með hann á pústþjónustu og kom í ljós að sköltið kemur úr liðnum sem er fyrir FRAMAN FREMRI HVARFAKÚTINN. Pústþjónustan sagðist ekki eiga svona lið en það eru einhverjar keðjur og/eða legur í liðnum sem eru lausar og skrölta svona hrottalega.
Það eru ekki samskeyti á milli hvarfakútsins og liðsins þannig að í raun þyrfti að kaupa lið með kút sem kostar 100þ+. Pústþjónustan sagðist geta skorið liðinn og sett annan "standard" lið í staðinn en sá yrði mun viðkvæmari og myndi hrynja ef togað yrði í hann.
Það eru engin göt eða ryð á þessu svæði þannig að ég spyr ykkur fræðinga hvort hægt sé að taka allt pústið undir gera við þetta??
IngiSig
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 93
Joined: Tue 17. Jan 2006 22:22
Location: 105

Postby Eggert » Fri 20. Jul 2007 12:15

Ertu viss um að þetta skrölt komi innan úr pústinu sjálfu? Það er ekki eins og það sé auðvelt fyrir aðskotahluti til að komast þangað...

Gæti þetta ekki bara verið pústgreinahlíf eða eitthvað álíka? ...eitthvað sem þarf bara að herða.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby IngiSig » Fri 20. Jul 2007 12:30

Það er enginn aðskotahlutur í pústinu, þetta var einungis viðlíking hjá mér á skröltinu. Ég hélt að þetta væri e-ð sem þyrfti að herða á en þetta var það sem verkstæðið sagði mér en þeir tóku bílinn á lyftu, tóku hlífina undan. Bílinn var í gangi og þá var nóg að styðja við pústið og þá hætti skröltið.
Þetta skrölt hljóðar svo mikið eins og e-ð sem þarf að herða á, þess vegna vill ég spyrjast fyrir um þetta áður en ég læt skera liðinn undan og setja e-n drasl lið í staðinn.
-Edit; þetta var síðan eftir allt hitahlíf f. miðju utan á pústinu sem skiptir víst litlu máli á Íslandi. Ein skrúfa hert og málið leyst.
IngiSig
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 93
Joined: Tue 17. Jan 2006 22:22
Location: 105


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests