Svenni Tiger að standa sig!

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Svenni Tiger að standa sig!

Postby arnibjorn » Thu 19. Jul 2007 18:45

http://www.mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1280989

Sveinn Elías Elíasson, úr Fjölni, er í þriðja sæti þegar fyrri keppnisdegi í tugþraut á Evrópumeistaramótin unglinga, 19 ára og yngri er lokið. Sveinn Elías hefur hlotið 4.007 stig og aðeins 70 stigum á eftir þeim sem efstur er. Sveinn var í 5. sæti eftir þrjár greinar en vann sig upp í tveimur síðustu greinunum, hástökki og 400 m hlaupi. Hann varð í 7. - 11. sæti í hástökki með 1,92 metra og náði síðan öðrum besta tímanum í 400 m hlaupi, 48,54 sekúndum. Árangur Sveins er afar góður, ekki síst vegna þess að hann er aðeins 17 ára og er einu til tveimur árum yngri en þeir sem eru í toppbaráttu í tugþrautinni. Sveinn Elías hefur keppni í fyrramálið í 110 m grindahlaup, því næst tekur við kringlukast, þá stangarstökki, því næst spjótkast og loks 1.500 m hlaup.

Efstir maður í þrautinni er með 4.077 stig og sá er annar hefur önglað saman 4.071 stigi. Sveinn Elías er með 4.007 stig og sá sem situr í fjórða sæti hefur 3.939 stig.

Í fyrstu grein dagsins kom Sveinn Elías fyrstur í mark í 100 m hlaupi á 10,73 sekúndum og bætti drengjamet sitt um 16/100 úr sekúndu en það setti hann í fyrra. Þá var Sveinn Elías aðeins 1/100 úr sekúndur frá 18 ára gömlu meti Jóns Arnars Magnússonar í unglingaflokki (19-20 ára). Þá er tími Sveins Elíasar í sá besti sem Íslendingur hefur náð í 100 m hlaupi í fimm ár.

Þá stökk hann 6,98 metra í langstökki og varð fjórði en átti erfiðara uppdráttar í kúluvarpinu, hafnaði í 19. sæti með 12,92 metra.

Alls hófu 22 keppendur tugþrautina í morgun og hefur enginn þeirra helst úr lestinni.



:)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby fart » Thu 19. Jul 2007 19:16

Bara svalt og erfitt að vera frambærilegur í tugþraut.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Alpina » Thu 19. Jul 2007 21:32

fart wrote:Bara svalt og erfitt að vera frambærilegur í tugþraut.


Gæinn .... hleypur hraðar en hvíta djásnið,, :naughty:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby fart » Fri 20. Jul 2007 06:57

Ég hljóp 400m hlaup í febrúar (partur af 35ára afmælis testinu mínu, tók þátt í Íslandsmeistaramóti Öldunga :oops: :? ) og ætlaði að gera það undir 60sek en var á 62 sek.

Nafni-Tígur var að keppa þarna í örðu móti og sá gat sprett úr spori. hann á framtíðina fyrir sér.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Stanky » Fri 20. Jul 2007 11:17

Tugþraut er ein erfiðasta íþrótt sem völ er á - svo margar greinar.

Þetta er góður árangur.

Til hamingju.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Aron Fridrik » Fri 20. Jul 2007 12:52

:clap:
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby Angelic0- » Fri 20. Jul 2007 13:03

GratZ
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Schulii » Fri 20. Jul 2007 16:07

Frábær árangur!! Congratz mate!!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 21 guests