Kraftsdagur á akstursbrautinni - Laugardaginn 21. júlí

Hvenær er næsta samkoma? Allt um það hér.

Ætlar þú að mæta á Kraftsdaginn á akstursbrautinni ?

Já ég mæti og keyri
9
22%
Já ég mæti en ég ætla að horfa á
15
37%
Nei ég mæti ekki
17
41%
 
Total votes : 41

Kraftsdagur á akstursbrautinni - Laugardaginn 21. júlí

Postby Gunni » Thu 12. Jul 2007 17:31

BMWKraftur hefur tekið Akstursbrautina á leigu fyrir félagsmenn sína í þeim
tilgangi að halda BMW-Krafts ONLY dag á brautinni.



Laugardaginn 21. Júlí verður BMWKrafts-leikdagur á Rallykross brautinni.

Aðeins gildir meðlimir BMWKrafts fá að aka á brautinni þennan dag.
Við hvetjum alla til að koma og horfa á.

Brautin opnar kl 10 og verður opin fram eftir degi



Sjónvarpskokkarnir og grillmeistararnir Árni Björn og Aron Andrew sýna
gamalkunna takta við grillið,, en pylsur og meðlæti, ásamt gosi verða í
boði Kraftsins!


Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.
Vinsamlegast farið varlega á malarveginum.


Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.


Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskírteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og við förum eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í Árna / Aron í síma 616-2694 / 869-6722

Ásamt tryggingaviðauka verða allir að prenta út eftirfarandi og skrifa undir
(og láta forráðamenn skrifa undir ef svo ber undir). Gerið copy / paste í word


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri á vegum BMWkrafts áhugamannafélags,
sem fram fer þann. 21 / 07 / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby xtract- » Thu 12. Jul 2007 17:35

dísess, það er alltaf verið að plata mann í að koma suður :(

*flott framtak samt :)*
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Postby Hlynzi » Thu 12. Jul 2007 18:59

Hehe, ekki mun þetta breytast mikið m.v. venjulegan dag.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby arnibjorn » Wed 18. Jul 2007 09:40

Jæja það er farið að styttast í þetta!

Ætla ekki fleiri að mæta og keyra?? :D

Það verða svo nóg af slöngum handa öllum! 8)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby gunnar » Wed 18. Jul 2007 09:45

Ég mæti :)
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Benzari » Wed 18. Jul 2007 09:50

Spurning hvort það viðrar fyrir sunnudagsrúnt á laugardegi.
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Wed 18. Jul 2007 10:14

ég mæti og keyri :P
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby arnibjorn » Wed 18. Jul 2007 10:33

Langar bara að hafa það á hreinu að það kostar bara 1000krónur að keyra.

Þannig að ef einhverjir eru ekki orðnir meðlimir í mótorsportklúbbnum og vilja prufa að keyra en týma ekki að borga 6000kr þá er málið að mæta núna :D

Hinsvegar þarf maður að vera meðlimur í kraftinum! 8)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Gunni » Wed 18. Jul 2007 10:35

Allir að muna eftir að fá tryggingaviðaukann fyrir laugardaginn.
Einnig þurfa allir að muna eftir því að prenta út staðfestinguna sem er í
fyrsta póstinum og koma með útfyllta!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby ValliFudd » Wed 18. Jul 2007 11:57

Ætli maður verði ekki að prófa 330 aftur á brautinni :twisted:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Stanky » Wed 18. Jul 2007 12:05

Má hlaupa brautina?
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Kwóti » Wed 18. Jul 2007 19:47

Stanky wrote:Má hlaupa brautina?


myndir amk. ná betri tíma en ég :P
VW Passat '07 2.0tdi
Kwóti
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Sat 02. Dec 2006 18:16
Location: RVK

Postby Steini B » Thu 19. Jul 2007 00:54

Stanky wrote:Má hlaupa brautina?

Til í rönn?


(ættir að hafa smá forskot á mig þar sem ég mundi ekki nenna gera það nema vera búinn með nokkra Thule... :lol: )
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Postby gunnar » Thu 19. Jul 2007 01:06

Endilega bara að flestir sem mæti, leiðinlegt að horfa alltaf á sömu bílana keyra hring eftir hring, þetta snýst ekkert bara um að spóla á fullu.


Hvernig væri nú samt að hafa einhverjar tímatökur á þessu ??? Einhverja hringina kannski.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Stanky » Thu 19. Jul 2007 01:08

Steini B wrote:
Stanky wrote:Má hlaupa brautina?

Til í rönn?


(ættir að hafa smá forskot á mig þar sem ég mundi ekki nenna gera það nema vera búinn með nokkra Thule... :lol: )


Hehe... sagði þetta bara vegna þess að mig langar svo að keyra... en bíllinn er bilaður :P
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Next

Return to Samkomur

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests