Sælir.
Hvaða olíu eru menn að setja á þessa bíla? það er kominn tími á olíu hjá mér og ég veit ekkert hvað ég á að setja eða hvað er á vélinni...
Hvaða olíu eruði svo að setja á gírkassa og drif?
Fyrirfram þakkir
Elli
jonthor wrote:Ég nota 5-30 á minn. Það er einmitt 323 '96
Það getur breytt mjög miklu hvernig olíu þú setur á þessar vélar, ég mæli ekki með 0-30 eða 0-40 hún er of þunn. BMW mælir með 5-30.
jonthor wrote:Já, sama hef ég heyrt um castrol 5-30, einmitt líka frá bæði b&L mönnum og BMW umboðsmönnum í París.
Allavega er það mín reynsla að minn brennir olíu með 0-40 en hreyfir hana varla / ekki með 5-30.
Mér finnst reyndar skrítið að B&L menn segi 0-40 við þig, þeir settu 5-30 á minn bíl síðast þegar ég fór með hann í smurningu hjá B&L. Ertu viss um að þú hafir sagt þeim að þetta væri E36? Nýrri vélarnar þola betur svona þunna olíu.
ValliFudd wrote:ég smellti á 323 minn mobile1.. Hann brenndi svona 1 líter per 3000 km..
Users browsing this forum: Google [Bot] and 10 guests