Leikdagur 7 og 8. Ekið í hina áttina þessa helgi.

Hér skal spjalla um BMW.

Leikdagur 7 og 8. Ekið í hina áttina þessa helgi.

Postby Porsche-Ísland » Thu 05. Jul 2007 12:41

Gaman að sjá hvernig það kemur út.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs.

Vinsamlegast farið varlega á malarveginum.



En annars er bara stöðluð auglýsing.

Föstudagskvöldið 06. Júlí verður leikdagur á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 20 og frameftir.

Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 8. Júlí og þá frá 10 um morguninn og fram eftir degi.


Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.

Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
Halldór Jóhannsson
Porsche 944 Turbo S '89
Porsche 924 Turbo '81
Porsche Boxster S '02
Audi A6 Quattro Avant '96
User avatar
Porsche-Ísland
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 409
Joined: Fri 28. Jan 2005 17:47
Location: Reykjavík

Postby xtract- » Thu 05. Jul 2007 12:53

frábært framtak að hafa þetta hverja helgi, hvað þá bæði föstudag og sunudag :)

Gaman að sjá svona metnað.

Ef mig minnir rétt frá því í fyrra þá er þetta allt saman skref í réttustu átt :)
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Postby gunnar » Thu 05. Jul 2007 12:57

Ugh hefði verið til í að koma um helgina og keyra.. :?

Jæja kem þá bara næstu 8)
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby arnibjorn » Thu 05. Jul 2007 13:02

Ég keyri ef það verður þurrt :)

Nenni ekki að mæta þarna í hellidembu :?
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby zazou » Thu 05. Jul 2007 14:21

Það verður áhugavert.
Þarf þá ekki að smækka pittinn? Bílar sem koma á fleygi ferð í átt að pittinum áður en kemur að hlykknum geta skapað hættu.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby gunnar » Thu 05. Jul 2007 14:22

zazou wrote:Það verður áhugavert.
Þarf þá ekki að smækka pittinn? Bílar sem koma á fleygi ferð í átt að pittinum áður en kemur að hlykknum geta skapað hættu.


Sammála því, spurning um að fara pittinn í áttina að það sem áhorfendurnir leggja bílunum, þ.e.a.s, hafa röðina þar hjá. Svo menn lendi nú ekki í því að negla á hvorn annan ef þeir ná ekki beygjunni.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby bjahja » Thu 05. Jul 2007 14:38

Djöfull, fyrsta skiptið í sumar sem ég get komið og þá er eithvað svona í gangi :lol:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby arnibjorn » Thu 05. Jul 2007 14:45

bjahja wrote:Djöfull, fyrsta skiptið í sumar sem ég get komið og þá er eithvað svona í gangi :lol:

Þetta á eftir að vera svolítið spes...

Ég var rétt svo byrjaður að geta spólað eitthvað þarna í rétta átt... spurning hvernig mér gengur í hina! :lol:

En já svo er spurning með hvernig piturinn verður.. :-k
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby bimmer » Thu 05. Jul 2007 14:52

Spurning hvort sá blái verði kominn úr tolli......
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby F2 » Thu 05. Jul 2007 15:20

arnibjorn wrote:Ég keyri ef það verður þurrt :)

Nenni ekki að mæta þarna í hellidembu :?


Gríslingur

Lærir mest á því að æfa þig í bleytu!!!

8)
Volvos always get bitches... its just fact... they cant resist the safety and the idea of not having to buy a different car when they have kids... bitches love that
User avatar
F2
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1697
Joined: Thu 22. Jul 2004 14:27
Location: over there

Postby zazou » Thu 05. Jul 2007 15:24

F2 wrote:
arnibjorn wrote:Ég keyri ef það verður þurrt :)

Nenni ekki að mæta þarna í hellidembu :?


Gríslingur

Lærir mest á því að æfa þig í bleytu!!!

8)

Og kostar minna... :lol:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby arnibjorn » Thu 05. Jul 2007 15:31

F2 wrote:
arnibjorn wrote:Ég keyri ef það verður þurrt :)

Nenni ekki að mæta þarna í hellidembu :?


Gríslingur

Lærir mest á því að æfa þig í bleytu!!!

8)

Jájá allt í lagi að keyra í bleytu.

En það er hundleiðinlegt að hanga þarna í grenjandi rigningu :wink:

Þið verðið að redda nýjum gám maður! :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby siggir » Thu 05. Jul 2007 15:38

Miklu skemmtilegra að keyra í blautu :P

Það er hægt að setja hraðahindrun til móts við pittinn.. Búa bara til hlykk með keilum og dóti. :idea:
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Postby arnibjorn » Thu 05. Jul 2007 15:40

Leggja bara Ofurbling Audi-inum fyrir pittinn.. þá eru allir safe :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Aron Andrew » Sat 07. Jul 2007 01:45

Þetta var bara nokkuð gaman :)

Þakka fyrir mig!
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests