Breska dæmið er líka skekt út af því að hraðamyndavélagleði þeirra er engu lík og á við engin rök að styðjast, þar af leiðandi eru tryggingafélögin búin að reikna út að punktar á ökuskírteini þýða ekki endilega að viðkomandi sé í meiri hættu á að lenda í árekstri.
En ég verð líka að vera sammála Fart í því að Ísland er alls ekki slæmt þegar kemur að tryggingaiðgjöldum, bresk tryggingafélög fara til dæmis MJÖG illa með unga ökumenn, ef þú ert 17 þá er liggur við vonlaust fyrir þig að eiga e-ð annað en bíl með 1.0 mótor. Einnig tryggja þeir ökumanninn sjálfan en ekki bifreiðina sem slíka, þannig að þú getur ekki hoppað upp í bíl hjá vini þínum og fengið að keyra fulltryggður.

