Eitt sem ég skil ekki samt ... til hvers að eiga bíl í vestamannaeyjum? Ég fann einn vegspotta sem var gaman að keyra þarna og hann var alveg 4km mesta lagi og að keyra á milli staða þarna tekur að hámarki 2 mín.
Það er smá viðgerð framundan, headpakkningin fór í honum
Ég er búinn að kaupa pakkningasett í efri hlutann á vélinni í Kistufelli og nýja headbolta, fékk pakkann á 14.000kr þannig ég er nokk sáttur með það. Fyrst ég er að fara í þetta ætla ég að nota tækifærið og taka heddið í gegn, slípa ventla og skipta um ventlaþéttingar og allar pakkningar sem kemur því við, ég byrja á þessu á morgun og verð vonandi kominn langt fyrir næstu helgi. Kem bara með myndir þegar ég byrja á þessu.
Heyrðu, ég bara man ómögulega nafnið á þeim en þetta eru orginal bmw felgur.
En sambandi við heddið, þá er það orðið klárt, búið að slípa saman ventla og ventlasætin og skipta um allt í kringum ventla. Einnig búið að plana heddið. Ég skelli þessu saman eftir helgi vonandi áður en ég fer útá sjó.