I'ts for FREE

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

I'ts for FREE

Postby elli » Sat 16. Jun 2007 01:33

Sælir,
ég póstaði því hér um daginn að ég væri staddur í Chile. Mig langar aðeins að kynna fyrir ykkur verðlagið hérna.
Það er moll við hliðina á hótelinu mínu, alveg haugur af búðum og svoleiðis. Ég byrjaði fyrst að skoða rafmagnstækin og var að bera verðið saman við það sem gerist heima jú jú það er nokkuð gott td. Ipod nano 4GB á 15.000 kall ca.
En þetta er ekki allt ég fór síðan inn í fatabúð Christian Lacroix (flott jakkaföt í glugganum) síðan mátaði ég þau allra flottustu jakkaföt sem ég hef séð, efnið er geðveikt o.s.fv. + skyrta og bindi. OK nú er komið að því að strauja kortið og ekkert mál með það. Ég bið stelpuna um að geyma fyrir mig fötin svo ég geti fengið mér að borða og tekið smá labbitúr um verslunarmiðstöðina. Ég kem síðan aftur og ætla að ná í fötin en ákveð að bæta við einni Skyrtu og bindi.

Reikningurinn fyrir allt dótið 20.000 Kr ISK ég gat ekki orða bundist og sagði stelpuni að þeir gætu alveg eins gefið þetta.
En sæluni er lokið í bili fer heim í nótt, 30 klst ferðalag.

Ciao
Elli
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby Henbjon » Sat 16. Jun 2007 02:02

jaaaaaaahá.. þetta eru nú engar fréttir þannig séð
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Postby elli » Sat 16. Jun 2007 02:09

BmwNerd wrote:jaaaaaaahá.. þetta eru nú engar fréttir þannig séð

Mér fannst þetta allav. stórmerkilegt! Þá á ég við fötin, mér er alveg sama um þetta Ipod dót.

Mér fannst bara gaman að deila þessu hérna. Svona til að sýna muninn á verðlagi hér og heima. Reyndar er fátæktin hérna rosaleg (enda eitt fátækasta svæðið í Chile) ég mundi ekki einus. bjóða hundinum mínum að sofa í sumum kofonum hérna.

Ég get bara ekkert að því gert að þú varðst fyrir vonbrigðum með "topic-ið" á þræðinum.

It is though OFF TOPIC 8)
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby HAMAR » Sat 16. Jun 2007 08:42

Alltaf gaman að fá fréttir frá útlöndum :wink:
sama hversu merkilegar þær eru.
En hvað í fjára eru menn að þvælast til Chile :?:
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: I'ts for FREE

Postby Alpina » Sat 16. Jun 2007 09:32

elli wrote:Sælir,
ég póstaði því hér um daginn að ég væri staddur í Chile. Mig langar aðeins að kynna fyrir ykkur verðlagið hérna.
Það er moll við hliðina á hótelinu mínu, alveg haugur af búðum og svoleiðis. Ég byrjaði fyrst að skoða rafmagnstækin og var að bera verðið saman við það sem gerist heima jú jú það er nokkuð gott td. Ipod nano 4GB á 15.000 kall ca.
En þetta er ekki allt ég fór síðan inn í fatabúð Christian Lacroix (flott jakkaföt í glugganum) síðan mátaði ég þau allra flottustu jakkaföt sem ég hef séð, efnið er geðveikt o.s.fv. + skyrta og bindi. OK nú er komið að því að strauja kortið og ekkert mál með það. Ég bið stelpuna um að geyma fyrir mig fötin svo ég geti fengið mér að borða og tekið smá labbitúr um verslunarmiðstöðina. Ég kem síðan aftur og ætla að ná í fötin en ákveð að bæta við einni Skyrtu og bindi.

Reikningurinn fyrir allt dótið 20.000 Kr ISK ég gat ekki orða bundist og sagði stelpuni að þeir gætu alveg eins gefið þetta.
En sæluni er lokið í bili fer heim í nótt, 30 klst ferðalag.

Ciao
Elli


Ótrúlegt verð
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby fart » Sat 16. Jun 2007 09:40

Nema þetta séu last season föt, nú eða fake. Annars ertu bara að gera góð kaup.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Thrullerinn » Sat 16. Jun 2007 10:22

Þetta er sambærilegt og í Asíulöndum, á Indlandi er hægt að fá klæðskera-
saumuð föt fyrir vel undir 10 þús kalli.
Læknar eru með um 30 þús. kall í laun á Indlandi..

Ég las í Lonely Planet að verðlagið hefði hækkað umtalsvert síðustu árin í Chile.

Síðan kostar síðan tæpan 6 þús kall að fá stöðumælasekt í Köben.. :?
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby elli » Sat 16. Jun 2007 16:37

Ég hugsaði auðvitað út í það hvort þetta færi fake. En ég held að svo sé ekki. Þá er ég allav. tekinn alveg rosalega. Þetta var sérverslun merkt hönnuðinum nokkuð stór allt í gjafapakkningum með borðum og svol. Þannig að ég er eins öruggur og hægt er að vera með upprunann. En ég skil vel að sú hugsun læðist að mönnum.

Launin hérna eru auðvitað í samræmi við verðlagið. Það er Íslendingur sem býr hérna sem ég þekki ágætlega búinn að vera hér síðan ca. 2000 hann sagði að þegar hann kom fyrst hingað var mikið um hestvagna á götunum akandi fólki og vörum, nú sést það varla enda hefur verið mikil þensla hér síðustu árin.
Ég sagði þeim hvað bjór kostaði heima og hve há mánaðarlaunin væru og þeir supu kveljur. Ég held að lágmarkslaun hérna á mánuði séum um 10.000 ISK

Ég er hér að strjórna uppsetningu á tækjum fyrir fiskimjölsbræðslu sem verið er að setja í nýtt fjölveiði skip (Færeysk útgerð). Við hjá fyrirtækinu sem ég vinn hjá hönnuðum og smíðuðum vélbúnaðinn sem fer um borð í skipið. Þetta eru það stór tæki (sum þeirra) að þau verða að fara inn í skrokk skipsins á byggingartíma þess, t.d. er stærsta einingin rúm 50 tonn.
Ég er núna í Santiago og er að bíða eftir flugi til Miami búinn að vera hér síðan á sunnudag. Það eru 12 klst í flugið svo það er akkúrat ekkert annað að gera en surfa á kraftinum. Ég er að vinna í að láta opna fyrir mig mynda svæðið hérna þannig að ég geti sett inn myndir frá skipasmíðastöðini, það er gaman að sjá hve rosalega stórt þetta allt saman er (Mega structure).
Þeir voru einnig að smíða nýtt herskip fyrir herinn hér í Chile sem var sjósett á fimmtudag. Hendi inn videoi af því líka þegar ég kem heim.

Svo er bara að vonan að ég verði ekki dauður úr leiðindum áður en kemur að þessu flugin til Miami.
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby Einarsss » Sat 16. Jun 2007 17:28

þú kemst þó allavega á netið ;) youtube.com er alveg staðurinn til að hanga á ef manni dauðleiðist og auðvitað bmw spjöllin :P

Hlakka til að sjá myndirnar
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby elli » Sat 16. Jun 2007 20:07

einarsss wrote:þú kemst þó allavega á netið ;) youtube.com er alveg staðurinn til að hanga á ef manni dauðleiðist og auðvitað bmw spjöllin :P

Hlakka til að sjá myndirnar

Akkúrat, annars væri ég farin að leita mér að áfallahjálp. Fær fólk ekki annars áfalla hjálp við öllu því sem kemur og óvart og erftitt er að sætta sig við.
Hvenar ætli verði boðið upp á áfallahjálp fyrir þá sem fá ekki 5 tölur í Lottóinu næst þegar hann er fimmfaldur :?
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 81 guests

cron