saemi wrote:drolezi wrote:
Ergo, radarvarar gera ekkert gagn ef löggan vill ná þér.
Radarvarar gera jú gagn... en maður verður að skilja hvernig þetta virkar. Radarvarar gera mikið gagn í ákveðnum aðstæðum, t.d. þegar maður er að krúsa úti á landi og lögreglan er að skjóta á bíla fyrir framan. Einnig þegar þeir eru með hann í gangi stöðugt á ferðinni, einir jafnvel í bíl með myndavél.
Margir halda hins vegar að hann vari mann við lögreglunni alltaf og áður en mælt er. Það er tóm vitleysa. Maður er engan veginn óhultur með radarvara í bílnum, en hann er frábært hjálpartæki finnst mér.
En annað, vitið þið hvernig hraðamyndavélarnar virka? Er það radar???
Veit að ef þú ert yfir 270km/klst þá sleppuru
(mythbusters)



