sjitt
Það virðist sem enginn á Akureyri geti gert eitthvað í bílnum mínum.
Var að tala við verkstæðiskallinn og:
-Hann vill meina að ICV sé óvirkur því þótt það heyrist í honum þegar ég set svissinn á þá snýr hann samt öfugt og ef hann snýr honum rétt og setur í gang þá er gangurinn alveg ömurlegur víst.. tékkaði á því að kvöld, þ.e. sneri honum rétt en það hafði voða lítil áhrfin.
-Kertin sem ég setti í fyrir stuttu eru sótsvört, sem þýðir að kertin eru að blotna alltof mikið.
-Þessar sprengingar sem gerast alltaf eru einhver rafmagnsgalli sagði hann, og hann hélt að sveifarrásskynjarinn væri að valda því, að hann hefði hugsanlega skemmst eitthvað þegar Gunni setti vélina í...
-ég spurði hann ekkert út í að stilla gjöfina, en gerði það sjálfur, þ.e. skrúfaði vírinn allveg til baka. þetta er klárlega eitthvað meira en bara að stilla gjöfina held ég...
-versta er að hann gat nefnilega ekki lesið bílinn.... er hægt að lesa hann einhversstaðar í RVK???
Var einmitt að senda gunna þetta, er hann farinn erlendis eða??
af hverju sneri ICV öfugt??
Haldið þið að sveifarrásskynjarinn sé kraftaverkalausnin sem ég er að bíða eftir???
hjjjjjjjjjjjjjálp?


