Er einhver sem veit hvort og þá hvar sé hægt að nálgast Owners Manual á PDF formi á netinu?
Ég er auðvitað að leita að manual fyrir E39 2003. Ég tel mig nú þekkja nokkurnveginn flest sem bíllinn hefur uppá að bjóða en það kemur mér sífellt á óvart hvað ég er virðist alltaf geta lært eitthvað nýtt. T.d. langar mig að læra á Key Memory, hvernig á að tengja símann minn við Bluetooth kerfið og sitthvað fleira. Ég er bara ekki að klóra mig í gegnum þýskuna í "manualnum" mínum!
