Snertifrí þvottastöð gerir aldrei neitt fyrir bíl sem er ekki nýlega bónaður eða tiltörlega nýbúið að þrífa hann.
Hann getur litið út fyrir að vera hreinn en er það ekki. Mjög sniðugt ef þú ert duglegur að bóna eða duglegur að þrífa. Koma þá við á svona stöð og rúlla bílnum í gegn, þá verður hann sjæní, ef það eru 3 vikur frá því þí þreifst bílinn vel og búið að vera vætutíð eða utanbæjarferð þá getur bíllinn hjá þér aldrei orðið almennilega hreinn þó hann líti út fyrir það.
En sniðugt útaf fyrir sig.
Ætli það sé ekki best að koma við á svona stöð þar sem að það eru gæjar að sprauta, svampa og græja og gera. Besti árangurinn eða ef maður hefur tíma að renna heim til sín og taka upp dæluna og svampinn.
Og svo ef þú ert að leita að stöð til að skilja bílinn eftir, þá hef ég verið að fara í Gæðbón í Ármúlanum og bílarnir litið út eins og nýir á eftir, að innan sem utan.
Góðar stundir
_________________ Kristján
|