Var að keyra í gær á svona 110+ og þá kom hljóð eins og eitthvað var að skellast úr eða uppí eitthvað.
Eftir það heyrðist svona hljóð eins og ég væri að draga eitthvað eftir götunni. Ég hélt að þetta væri pústið, en svo var ekki.
Svo heyrist líka svona tikk hljóð, því hraðar sem ég ek því tíðara verður hljóðið.
Hljóðið kemur frá afturhjóli farþegameginn.
Það virðist ekkert vera athugavert við bílinn þegar einhver stendur fyrir aftan eða hliðina á honum á meðan ég keyri. Hljóðið heyrist líka miklu minna úti og mjög hátt inn í bíl.
Hefur einhver klú?
kv,
haukur




