E36 coupe - rúðuvesen!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E36 coupe - rúðuvesen!

Postby Ingsie » Fri 01. Jun 2007 18:03

Ok Tvídí er í fýlu :lol:
Semsagt alltaf þegar ég opna hurðina, þá fer rúðan örlítið niður, og þegar ég loka þá fer hún aftur upp (sem er alveg normal)

En núna hefur rúðan ákveðið að fara bara svona smá niður þegar henni hentar, s.s þegar ég er að keyra þá fer rúðan smá niður og það hvín svona rosalega, sem er ekkert nema pirrandi!! Þó svo ég opni og loki hurðinni, þá fer hún ekkert alltaf aftur upp..

Vitiði hvað gæti verið að ? :oops:
E21 - E30 - E36
User avatar
Ingsie
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1525
Joined: Sun 14. May 2006 14:00
Location: Hér & þar

Postby Bjarki » Fri 01. Jun 2007 18:17

Það getur verið að það þurfi að setja rúðuna í núllstöðu.
Stilla hana inn, man ekki alveg hvernig það er gert.
Var með góða grein um þetta úr TotalBMW, fann hana á netinu á síðunni þeirra en finn hana ekki núna.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Dr. E31 » Fri 01. Jun 2007 19:07

Er þetta ekki bara micro rofinn í haldfanginu sem er eitthvað að klikka?
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Postby Einsii » Fri 01. Jun 2007 19:07

Ég er 99kommasjö prósent viss um að þetta er takkinn sem hurðin ítir inn þegar hún lokast, Þessi takki er úr plasti og slitnar þessvegna,
Hann er staðsettur inni í læsinguni á bílnum (eða lykkjuni sem læsingin á hurðini krækir í á bílnum.
Ég reddaði þessu hjá mér með þykku límbandi svo að hurðin næði til að íta takkanum alveg inn.. settu bara ekki lím yfir takkann heldur láttu smá límbandsbút öfugt þar yfir á límröndina..
Eða skiptu um takkann :)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby siggik1 » Fri 01. Jun 2007 20:37

rétt hjá einari þetta er lítið plast djöfull sem eyðist upp, sem mynnir mig á það ég pantaði svona dóog á eftir að sækja það :S
User avatar
siggik1
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1445
Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests