Ljósmyndakeppni BMWKrafts og B&L - FRAMLENGT TIL 15. okt

Hér skal spjalla um BMW.

Ljósmyndakeppni BMWKrafts og B&L - FRAMLENGT TIL 15. okt

Postby iar » Fri 01. Jun 2007 00:17

Í sumar verðum við með í gangi ljósmyndakeppni. Keppnin mun standa frá og með 1. júní til og með 15. október. Nánari upplýsingar hér fyrir neðan og á http://www.bmwkraftur.is/ljosmynd/

Ljósmyndakeppni BMWKrafts og B&L

Image Image

Tilgangurinn með keppninni er að sameina áhugamál margra meðlima BMWKrafts, ljósmyndun og BMW og allt tengt BMW.

Þema
Allt tengt BMWKrafti, BMW og/eða öðrum tengdum málefnum.

Tímabil
Keppnin stendur frá og með 1. júní til og með 15. október 2007.

Verðlaun
Vegleg verðlaun eru í boði B&L. Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar að mati dómnefndar.

* 1. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 30.000,- í verslun B&L
* 2. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 20.000,- í verslun B&L
* 3. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 10.000,- í verslun B&L

Reglur
* Þátttökurétt hafa allir gildir meðlimir í BMWKrafti
* Hver þátttakandi má senda inn þrjár myndir. Ef þátttakandi sendir inn fleiri myndir eru aðeins þær þrjár nýjustu teknar gildar.
* Myndir skal taka á stafræna myndavél og skila á jpeg sniði (.jpg)
* Upplausn myndar er frjáls. Lágmark stærð mynda er þó 250px á annanhvorn kantinn.
* Myndir skulu hafa verið teknar af sendanda á tímabilinu frá og með 1. júní til og með 31. ágúst 2007.
* Innsend mynd verður að vera tekin á einum lýsingartíma (e. exposure). Undantekning á því eru svokallaðar HDR myndir. Hvorki má bæta við hlutum úr öðrum myndum né teikna inn á myndina.
* Heimilt er að laga minniháttar galla í myndum en samt sem áður er bannað að eyða, afrita, búa til eða færa þýðingarmikinn hluta myndarinnar. Við mælum sterklega með að þú takir fram allar breytingar sem gerðar eru á myndinni í reitinn "Lýsing" til að auðvelda dómnefnd yfirferð á myndum.
* Allar breytingar á myndum sem eru gerðar í myndavélinni sjálfri eru leyfðar.
* Ekki má bæta neinum texta við/á myndirnar eftirá.
* Óheimilt er að stækka myndflöt (canvas) til neins annars en að búa til sýnilegan ramma sem er aðgreinanlegur frá myndinni.
* Þátttakendur gætu þurft að senda inn óbreytta, upprunalega mynd eins og hún var tekin ásamt lýsingum á því hvernig myndin var unnin eftir á í tölvu. Upprunalega myndin verður að innihalda EXIF upplýsingarnar gildar og óbreyttar. Ef ekki tekst að útvega myndina áður en 10 dagar líða frá því að óskað er eftir henni verður myndin dæmd úr leik.
* BMWKraftur áskilur sér rétt til að nota myndirnar í kynningarefni og í birtingu úrslita keppninnar. Myndirnar munu þá vera greinilega merktar höfundum. Öll önnur notkun mynda er bönnuð nema að höfðu samráði við höfund.
* Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna myndum sem brjóta gegn þessum reglum eða þykja af öðrum ástæðum ekki falla undir skilyrði og/eða þema keppninnar.
* Dómnefnd hefur einnig rétt til að framlengja skilafrestinn eða jafnvel blása keppnina alveg af ef ekki næst næg þátttaka.

Þátttaka
Þátttökurétt hafa allir gildir meðlimir BMWKrafts.


Hægt er að senda inn myndir á vef keppninnar:


--> http://www.bmwkraftur.is/ljosmynd/ <--
Last edited by iar on Sat 03. Nov 2007 16:08, edited 3 times in total.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Steini B » Fri 01. Jun 2007 00:28

Ohh, og ég sem er nýbúinn að selja vélina mína... :lol:
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Postby Kull » Fri 01. Jun 2007 10:15

Flott mál, var einmitt að ljúka ljósmyndanámskeiði :)
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!
User avatar
Kull
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1505
Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Location: Seltjarnarnes

Postby iar » Fri 01. Jun 2007 11:08

Steini B wrote:Ohh, og ég sem er nýbúinn að selja vélina mína... :lol:


Keppnin stendur í allt sumar svo það er nægur tími til að redda nýrri eða fá bara lánaða. :-D
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby elli » Fri 01. Jun 2007 12:12

Þetta er skemtilegt uppátæki.
Nú er bara að skipta um battery í vélini sem ég fékk hjá Sæma.

Er ekki til eitthvað sem heitir "beginers luck" í ljósmyndun 8)
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby Axel Jóhann » Thu 14. Jun 2007 01:51

Flott þetta, ætla reyna vera með þó ég sé enginn súper ljósmyndari.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby Vargur » Thu 14. Jun 2007 13:07

Frábært framtak !
Ég er forvitinn um dómnefndina, hverjir eru í dómnefnd og hvað hafa þeir til brunns að bera ?
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby iar » Wed 11. Jul 2007 00:15

Uppfært!

B&L mun veita VEGLEG verðlaun fyrir þrjár bestu myndirnar:

Image

1. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 30.000,- í verslun B&L
2. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 20.000,- í verslun B&L
3. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 10.000,- í verslun B&L


Varðandi dómnefndina (afsakaðu Dúfan, þessi póstur frá þér fór algerlega framhjá mér :oops: ) þá verður ekki auglýst hverjir sitja í dómnefnd en hún verður blönduð, m.a. aðilar frá BMWKrafti, B&L ásamt reynslubolta úr ljósmyndaheiminum.

Nú fer tímabilið að verða hálfnað svo það er um að gera fyrir fólk að vera duglegt við að taka myndir og senda inn!!
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby iar » Thu 02. Aug 2007 22:37

Minni á að aðeins tæpur mánuður er eftir af ljósmyndakeppninni!

Allt um keppnina, reglur, verðlaun og annað er að finna hér:

http://www.bmwkraftur.is/ljosmynd/

Athugið að um MJÖG vegleg verðlaun í boði B&L er að ræða svo það er rugl að taka ekki þátt! :-D
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby iar » Thu 30. Aug 2007 20:44

Síðasti dagurinn framundan!

Það er pláss fyrir MIKLU fleiri myndir!

Núna eru 10 þátttakendur búnir að senda inn samtals 18 myndir!
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Einarsss » Tue 04. Sep 2007 12:24

Hvenær verða úrslitin kynnt? Maður er spenntur að sjá hvaða myndir vinna
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Hannsi » Thu 13. Sep 2007 11:05

einarsss wrote:Hvenær verða úrslitin kynnt? Maður er spenntur að sjá hvaða myndir vinna

Var ekki verið að tala um að hafa það á árshátíðinni!?
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby Einarsss » Thu 13. Sep 2007 11:22

Hvar var talað um það?
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby iar » Thu 13. Sep 2007 11:40

einarsss wrote:Hvar var talað um það?


Orðið á götunni.. ;-)

En jú. Planið er að úrslitin verði kynnt á árshátíðinni. :-D
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby iar » Mon 24. Sep 2007 21:53

Ljósmyndakeppnin hefur verið framlengd til 15. október!

Athugið að ekki verður tekið hart á því hvenær myndin er tekin, þ.e. myndin þarf ekki endilega að vera tekin á tímabilin júní-ágúst.

Nú er um að gera að grafa upp góðu myndirnar og senda inn!! Khoma Schvo!! :clap:
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 83 guests