by slapi » Wed 30. May 2007 20:19
Besta leiðin ti að sjá hvort að bíll leiði út er að setja straummæli milli - á rafgeymi og mínus leiðslunar sem kemur á rafgeyminn , athugaðu það að ekki má rjúfa sambandið meðan sambandi er tekið af , þe setja pinnana á straummælinum á skóinn og á pólinn og aftengja síðan , passa að allar hurði séu lokaðar eða inniljós slökkt og þjófavörn virk ef að það á við , ef ekki þá hurðir bara læstar.
Við fyrstu aðstæður er ekkert óalgegnt að sjá 200mA-1A í notkun þetta er fyrst áður en að öll stjórnboxin sofna , þau sofna á mislöngum tíma, 5 min og upp í 40 min eftir sirka 10 min myndi ég halda í þessum bíl ættirðu að fara að sjá tölu frá 50-80 mA sem er æskileg notkun þegar bíll er í hvíld , getur verið meira eða minna en allt yfir 120-150 mA er orðið óæskilegt , ef að notkun er óeðlileg er hægt að sjá hvert notkunin er að fara fyrst með því að taka úr eitt og eitt stofnöryggi og sjá hvort að notkunin minnkar , fikrað sig neðar í rásirnar eða í öryggin sem að fara inn á notendurnar og bilanagreint síðan með því hvaða hlutir eru á því öryggi sem að notkunin fer.
Man ekki eftir einhverju vandamáli í E36 í þessum málum.
Síðan getur þetta nátturulega bara verið rafgeymirinn , láttu tjékka á því fyrst með að láta álagsmæla geyminn , kemur strax í ljós hvort hann sé´lífs eða liðinn.