ein spurning til ykkar kraftsmennina.. svona svo það gæti hjálpað mér að ákveða hvort ég ætti að gera! það er spurning um litinn á felgunum?
1: gunmetal = flottur litur, en passar samt ekki alveg við heildar lúkkið á shadowlineinu sem maður er með í gangi..
2: svartar: held að það myndi fitta miklu betur við allt shadowlineið sem maður er búinn að koma fyrir á bílnum.
þannig mín útskýring er þannig að ég fýla gunmetal litinn alveg mjög vel, nema það að ég held að hann myndi samt ekki gera mig ánægðan gagnvart heildarlúkkinu á bílnum, þessvegna er ég að spá í hvort ég eigi frekar að láta sprauta þær svart sanseraðar? það gæti komið helvíti flott út?
Mér finnst svörtu nýrun koma rosalega vel út og mér finnst þessi bíll bara í heild virkilega fallegur hjá þér. En ég verð að vera sammála að þessar felgur á þessum bíl svartar kæmi ekki vel út að mínu mati. Fer ekki mörgun bílum vel, sumum þó.
jæja.. dundaði mér aðeins um helgina! ég tók vélarsalinn aðeins í gegn og felgurnar VEL í gegn, enginn háþrýstiþvottur né neitt svoleiðis.. bara skrúbbur og læti.
svo þurfti ég að festa svörtu nýrun betur þar sem double tape þoli illa tjöruhreinsir og hreinsiefni..
ég prufaði alveg heiftarlega góðan felguhreinsir.. og ég eiginlega átti bara ekki til orð hvað hann virkaði svaðalega! felgurnar hafa ALDREI verið jafn hreinar.
hérna sjáiði aðeins betur carbon merkin sem ég setti á bílinn í staðin fyrir orginal hvítu og bláu.
svo þegar ég var búinn að dunda mér aðeins í bílnum þá var mér farið að leiðast.. þannig ég fór bara og keypti mér XBOX 360, fjóra leiki og auka fjarstýringu.. (tveir leikirnir eru ekki inná myndinni
sorry.. ég gleymdi víst að taka það framm, hafa örugglega margir prufað hann áður en ekki ég fyrr en um helgina. þetta var Sonax felguhreinsir, ekki sýra.. hann verður svona fjólublár einhvernvegin þegar hann er búinn að liggja smá á. kostar reyndar 2000+ krónur brúsinn
já þá er kagginn víst á leiðinni í shæning eftir helgi.. verið að fara að sprauta frammendan, afturstuðara og aðra frammhurðina, svo verða felgurnar málaðar og restin mössuð