Ég prófaði að leita innan spjallsins og fann engan almennilegan þráð um þennan bíl sem er að komast á fjórða aldursárið en V8 Topster er concept bíll frá AC Schnitzer frá árinu 2003 og var hannaður og smíðaður á mettíma.
Í grunninn er þetta 2003 módel af BMW Z4 3.0l og er þetta orðið 8 cyl græja nánar tiltekið mótor að nafni S62 (4941cc) mótor úr smiðju BMW Motorsport deildarinnar sem er að skila upprunalega 294kW(400ps).
AC þurfti auðvitað að auka örlítið við orkutöluna sem fer úr 294kW í 331kW(450ps) en þessari aflaukningu ná þeir með að auka þjöppuna úr 11,0:1 í 11,5:1 og smá endurbætur á forriti vélartölvunar.
Þó kW talan hoppi ágætlega upp við þessar endurbætur fer togið aðeins upp um 20 Nm sem er þá komin í 520 Nm sem er kannski ágætt í "Z4" enda er V8 Topster ekki nema 4,5sec í 100km/klst.
Aftan á þetta kemur sami gírkassi og þekkist í E39 M5 s.s. Getrag týpa D, 6gírar áfram og 1 afturábak með sjötta gírs hlutfall 0,83:1 sem að tryggir V8 Topster endahraða upp á 305km/klst(Takmarkað rafrænt) á 3,62:1 hlutfalli sem er með 0-100% sjáflbreytilegri læsingu.
Eins og góðum "tjúnara" sæmir þá er það ekki bara einn þáttur af bílnum tekinn fyrir því að alvöru race bíll þarf endurbætur á öllum sviðum , þar má nefna að bremsukerfi er vel endurbætt þar sem að diskastærð hefur verið aukin , Ø 365mm framan og Ø 328mm að aftan, átta stimpla kappaksturs dælur að framan tryggir það að Topster getur ráðið við neikvæða hröðun vel yfir 1 g á brautinni.
En ekki er hægt að þakka eingöngu bremsum þessum kröftum því að AC Shnitzer tók fjöðrunarkerfi Z4 og skipti því algjörlega út , Demparar , gormar , spyrnur , ballansstangir og meira að segja hjólalegur hafa verið endurbætt sem að tryggir hámarksvegrip við ýmsar aðstæður og allt að 35 mm lækkun frá uppunalegri hæð Z4 og sést einnig vel á fyrstu mynd demparaturna stífa sem er alveg gífurlega snyrtileg en auðvitað með fullt notkunargildi til að nánast eyða togkröftum innan boddýsins að framan.
Bíllinn er alveg óskaplega einstakur í útliti , ekki bara sprautunin því snillingarnir hafa sett svona einstaka detail hér og þar til að gera bílinn svolítið að sínum með gífurlegt prinsipp auðvitað.
Innrétting hefur verið tekin í gegn með held að mér sé óhætt að segja einstökum hætti því litirnir flæða einnig inn í bílnum (orange carbon verður inn eftir nokkur ár).
20" AC felgurnar undir þessu harmonera bílnum rosalega vel , aðeins tvennt eftir að segja 255/30R20 að framan og 305/25R20 að aftan.
En ég ætla að leyfa myndunum að tala af þessum geggjaða vagni.
Fleiri myndir og video á
http://www.ac-schnitzer.de/en/bmw-cars/garage/concept-cars/2003-v8-topster/multimedia/