Annars er ég ekkert of sáttur...
Það þurfti að skipta um stýrismaskínu, og var ný pöntuð í byrjun apríl,
svo fæ ég bílinn og það eina sem ég þarf að gera er að panta tíma þegar hún kemur, þarf ekkert að borga...
En hún kemur seint í apríl og ég panta tíma um leið og fæ ég tíma kl. 8 16. Maí
Svo fór ég með bílinn kl8 og skil hann eftir (greinilega ekki allir sáttir við hvar....

)
Og það var alveg búið að koma til tals að hann yrði að vera tilbúinn samdægurs þar sem ég bý útá landi....
(og ég var búinn að heyra það frá nokkrum að stýrismaskínuskipti tæki bara rétt rúmlega hálfann dag þannig að ég ætti að verra safe...)
Svo erum við Binni á rúntinum og við prufum að renna inní port til þess að sjá hvort hann stæði nokkuð enþá þarna úti,
og það er einmitt það sem hann gerði þannig að ég fór inn og fór að spurjast fyrir hvort hann væri tilbúinn
Þá sagði kellingin að hann væri ekki tilbúinn, svo að hann þyrfti að vera þarna nokkra daga í viðbót (lokað í dag)...
Ég auðvitað EKKI sáttur með þetta þar sem ég þarf að komast austur...
En ég tala við viðgerðagaurinn og hann segir að mér sé óhætt að taka hann,
(þeir voru semsagt EKKERT búnnir að gera, nema líta á þetta og segja: já, þetta tekur svo langann tíma að við verðum að gera þetta seinna...)
Við semjum svo um að ég komi með hann aftur á þriðjudag,
sem þýðir að ég verð annaðhvort að taka mér AFTUR frí frá vinnu, eða koma honum í bæinn eftir helgi og koma mér á selfoss...
(reyndar fínt að eiga þá 2 bíla og geta verið bara á BMWinum á meðan...

)