bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 07. Jun 2025 22:13

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 156 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 10:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ef þeir myndu nota Carbon í bíla til að létta þá ætti enginn efni á þeim það er málið,
Þetta er allt compromise hjá þessu liði,


Þess vegna reynir BMW að einbeita sér að því að meika góða bíla með en frábærrari vélum,

Mér finnst þeir bara vera að standa sig þokkalega

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 10:51 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það er nú nefnilega málið að það er vel hægt að fórna ýmsum búnaði sem kostar og hafa í stað þess carbon, slá tvær flugur í einu höggi= léttari bíll en sama verð...

Hver hefur sosem við ABS, EBD, ESP, SRS, GPS, GSM og fleiri þriggja stafa skammstafanir að gera ef bíllinn væri bara almennilegur á þeirra!

Sleppa ÖLLUM aukabúnaði sem er þægindatengdur að hætti ELISE (sem reyndar eru fáanlegir með aukabúnaði í dag) hafa góða vél, góðann trúktur og léttan bíl...

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 11:01 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Posts: 3939
Location: London
Mér finnst þetta vera komið útí soldið bull. Ég hef gaman að góðu og skemmtilegum bílum, þá sérstaklega þessum eðal þýsku bifreiðum sem klúbburinn er jú kenndur við. En ekki mundi ég vilja eiga t.d. BMW með álbekkjum og engu öðru bara útaf því að þá væri hann ýkt léttur!

Ég vill góðan BMW með fallegum dýrshúðarsætum og fínum hljómflutningstækjum, rafdrifnum rúðum og öðru slíku sem hefur einnig góða vél og kemst vel áfram. Það er ekki eins og ég sé í kappakstri í vinnuna eða skólann sem lætur mig þurfa að eiga bíl sem 100% carbon með engum þægindum bara útaf því að þá er hann ýkt léttur ?!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 11:02 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Posts: 315
Location: Neðra
Gunni wrote:
Mal3 wrote:
Lotus


Meinarðu þá as in klósettpappír eða ?


Væri ekki frekar hallærislegt að láta 30 ára gamlan fjarka keyra í hringi kringum BMW Z3 2.8? Væri ábyggilega sárt ef maður væri BMW eigandinn.

_________________
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 11:03 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Posts: 3939
Location: London
sár ?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 11:09 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 03. May 2003 18:27
Posts: 834
Ekki drulla yfir Lotus pappírinn...eða hvað, kannski er hann einmitt ætlaður í það

_________________
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 11:09 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Vörum við ekki að tala um M bíla?

Málið er bara að þetta gengur ekki til lengdar svona...

Reynið að sjá fyrir ykkur svona 6 ár fram í tímann.

Þá verður M3 með V8 vél og líklega um 450-500 hestöfl og sennilega um 1600 kíló að þyngd. M5 verður með V10 vél og 500-600 hestöfl og örugglega að nálgast tvö tonn....

M7 gæti hugsanlega verið kominn á markað og hann væri þá væntanlega um 700 hestöfl og troðinn af útbúnaði og um 2.5 tonn á þyngd.

Ferrari menn væru þá komnir með sitt andsvar við hestaflakapphlaupinu sem væri annaðhvort mjög léttur bíll að skila um 600 hestöflum, eða þá að þeir færu Veyron leiðina og framleiddu bíl með yfir 1000 hestafla vél - þetta er gjörsamlega glórulaust og það felst engin ánægja í þessu... þetta er bara "gluttony" og ekkert annað.

"What it is: Gluttony is an inordinate desire to consume more than that which one requires."


Þó maður hafi bílinn léttann og úr Carbon að hluta þá er alveg hægt að henda með rafmagnsrúðum og leðri... maður hefur nú ekki nein alvöru not fyrir aðra hluti en rafmagn í rúðum, vökvastýri og lofkælingu. Flest annað er bara óþarfi.

Gluttony er náttúrulega ein af dauðasyndunum sjö :wink:
http://deadlysins.com/sins/gluttony.html

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 11:09 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Posts: 315
Location: Neðra
gstuning wrote:
Ef þeir myndu nota Carbon í bíla til að létta þá ætti enginn efni á þeim það er málið,
Þetta er allt compromise hjá þessu liði,


Þess vegna reynir BMW að einbeita sér að því að meika góða bíla með en frábærrari vélum,

Mér finnst þeir bara vera að standa sig þokkalega


Það er ekkert annaðhvort carbon eða stál. Mazda setti sér markmið að gera RX-7 3. gen. eins léttan og mögulegt væri án "framandi" efna og tókst ágætlega held ég með ca. 1200kg bíl. Nýja RX-8 tekur tveimur fleiri í sæti og er samt aðeins um 1300kg. Reyndar hjálpar létt vél mikið til.

Audi og Honda hafa unnið frumkvöðulsvinnu með álbíla, en það er náttúrulega dýr tækni. Samt held ég að álsmíðin og þyngd nýja XJ Jaguarsins sé það merkilegasta við bílinn. Hvað er XJ8, um 1650kg?

Það er enginn að biðja um bíla smíðaða úr koltrefjum og það strax, bara að bílaframleiðendur veiti þessum þætti athygli. Það að gera bíl léttan hefur marga kosti í för með sér og ætti að gleðja jafnt þá sem vílja kraftmeiri bíla, liprari bíla og umhverfisvænni bíla.

Það sem flestir virðast samt vera að gera í dag er að nota hástyrktar stál í meira magni, sem er bara hið besta mál, en flestar gerðir virðast þó enn bæta á sig...

_________________
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 11:41 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það er einmitt málið...

Mazda er að gera nýja hluti með RX-8 bílnum og mjög spennandi.

BMW kemur reyndar með nýju sexuna sem verður nokkuð létt eða innan við 1600 kíló með öllum búnaði og verður það að teljast ágætt.

Ég held samt sem áður að BMW gerir sér grein fyrir því hvert stefnir og hafi meðal annars þessvegna látið vaða með E46 M3 CSL til að kanna grundvöllin fyrir því að skipta framleiðslunni niður.

Annarsvegar tæknilega fágaða bíla með öllum búnaði og hinsvegar meiri hardcore bíla í takt við hina eldri BMW bíla.

Ég held einmitt að margir hérna séu búnir að gleyma hefðinni hjá BMW en hún liggur í léttum basic bílum með gott performance eða allt fram til ársins 1989.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 12:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ég held einmitt að margir hérna séu búnir að gleyma hefðinni hjá BMW en hún liggur í léttum basic bílum með gott performance eða allt fram til ársins 1989.


Ég vissi ekki að þetta væri hefðin hjá BMW, hvar segir það,
Ég held að þú haldir að það sé hefðin, þeir búa bara til klassa bíl með performance, enginn að tala um létt þetta eða hitt,

M3 hefur aldrei verið framleiddur til að vera léttur, ekki heldur E30 M3 með sín 1250kg,
Seint ´85 bíllinn er líklega léttastur, var með minnst af aukahlutum,

Hefðin hjá BMW er
The ultimate driving machine, það includar allt sem viðkemur bílnum

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 12:23 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Eins og Árni sagði, þá eru allir bílar að stækka, og það koma nýjir í staðinn. Samanber, golf-passat(jetta), polo-golf-passat, síðan lupo-polo-golf-passat og lupo er núna svipaður og fyrsti golfinn.
Sama er að gerast með bmw, 3-5-7 síðan er 3 orðinn eins og gamla 5an og þá kemur 1 í staðinn.
Flest svna common people lítur ekki á weight to power (því miður) heldur bara á hestana. Þessvegna er þetta að fara svona út í öfgar.

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 12:35 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
BMW hefur framleitt marga fræga OG létta bíla miðað við þeirra tíma keppinauta eins og 3.0 CSL, Isetta, BMW 2002 og svo E30 M3. Þetta eru þeir bíla sem flestir kannast við.

Ég var hinsvegar að benda á það að þó eldri bílar BMW hafi ekki verið neitt ofurléttir þá voru þeir ekki haldnir þessu offitu vandamáli sem hrjáir nýja bíla í dag.

Mælaborð voru einföld, hurðaklæðningar sáraeinfaldar, oft lítið um aukabúnað, grannir gluggapóstar, ál í húdd t.d og ýmislegt fleira er hægt að telja upp.

Ávallt hafa menn reynt að stilla þyngd í hóf á þeim bænum og meira að segja stundum farið mjög langt í þeim efnum.

BMW leggur áherslu á eftirfarandi atriði og hefur alltaf gert.
Afturdrif
Tengsl ökumanns við bílinn
50/50 þyngdardrefing
Tækni hvað akstur varðar (dynamic drive og dynamic steering t.d.)
Akstursánægja
Og síðast en ekki síst - mótorsport.

Ef þetta er ekki gagnstæða tveggja tonna bíls hlöðnum búnaði þá veit ég ekki hvað.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 13:00 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
bebecar wrote:
Ég held einmitt að margir hérna séu búnir að gleyma hefðinni hjá BMW en hún liggur í léttum basic bílum með gott performance eða allt fram til ársins 1989.


Hefðin hjá BMW hefur nú líka legið í því að koma alltaf með stærri vélar. T.d. frá því að "New Class" byrjaði með BMW 1500 og það endaði á BMW 2002. Alltaf öflugri vélar. Núna eru bara verið að stækka vélarnar á aðra máta enda framleiðsluferli á bílum orðið allt annað en á þeim tíma.

Svo voru Baroque Angle bílarnir ekkert voðalega litlir. ;-) Þeir voru bara ekki réttu bílarnir á réttum tíma. Er ekki bara rétti tíminn núna fyrri stórar vélar í stóra bíla?

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 13:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Það er nefninlega málið með BMW þeir eru einu sem geta látið þunga bíla virka


þannig gefið bílnum 50/50 og handling og aukabúnað sem nýjir bmw kaupendur vilja,

Ef bíll er 2000kg og höndlar eins og aðrir 1500kg bílar þá kalla ég það afrek,

MMC 3000gt er álíka þungur og M5 nýr, hvort er höndlar betri, M5 bíllinn
Það er BMW að störfum

Auðvitað langar mig í CSL bíl, líklega klikkaður, sérstaklega með dekkin sín sem maður þarf að skrifa undir samning til að nota
Nýji M3 bílinn þrátt fyrir sína þyngd fær lof ofan á lof, meira að segja hjá létt leika loverunum í EVO
Margir talandi um besta drivers bíl sem hefur komið frá BMW,

Og þangað til að við getum prófað sjálfir þá skulum við bara fara eftir því sem aðrir segja

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 13. Aug 2003 13:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
það segir sig náttúrulega sjálft að ný týpa bíls verður að hafa meira heldur en sú gamla..

jón jónson keypti sér nýja fimmu árið 98, nú er bíllin hans orðinn 5ára gamall og bíður hann eftir nýrri. svo kemur nýja fimman og hún er hvorki stærri né betur búin? helduru þá að jón færi að borga kannski 2-3milljónir á milli til að kaupa nýja bílin? nýji bíllin verður að hafa allt umfram þann gamla svo fólk kaupi hann, í dag er í tísku að hafa sem mest af búnaði.. sem mest þægindi, sem mest vélarafl og svo framvegis.. og ef bmw færu að minnka bílana og þynna innrétingar og flr held ég þeir gætu alveg sent starfsmennina heim og sagt þeim að læsa á eftir sér.

ég hlýt að hafa miskilið þessi kjörorð bmw, þar sem ég hef alltaf álitið bmw vera stóra og vandaða bíla hlaðna aukabúnaði sem þú finnur ekki í flestum bílum og svo með frábærakasturseiginleika og stórar vélar. mér finnst 750IAL bíll gott dæmi um ekta bmw. ef ég vildi lítin og hráan bíl þá keypti ég mér hræhatsú karate, hann er lítill, hrár,tæknilega ófullkomin, og skilar hverju hestafli í æð.

bebecar.. ef þú tekur samkepnisbíl við bmw-inn þinn frá sama ári þá held ég að bmw sé mjög "vel bólstraður" meðað við þann bíl. ég held að það sem þig vannti sé rallíbíll á bláum númerum...

ég myndi aldrei kaupa bmw sem væri búið að sneiða öllum búnaði.. ég myndi kaupa bmw vegna alls búnaðarins sem er í honum.. annars þætti mér ekki mikið til bílsins koma.. rétt eins og ég gerði þegar ég kerypti bílin sem ég á í dag.. og það er alltaf janf skemmtilegt að koma úr bílum eins og lancerum og þessum venjulegu bílum og hoppa inní möxuna og finan hversu vel hljóðeinangruð hún er, allt rafdrifið eða tölvustýrt og gott að keyra,og jú gott að sitja í leðrinu, Nákvæmlega þetta væri ég að leyta eftir í bmw, plús að þá myndi ég vilja böns af hestöflum með líka.

þessvegna elska ég e39 m5, stór lúxusbíll með hlutum eins og dvd spilara, en svo afturámóti er hann hreynræktað villidýr líka.

p.s hestaflastríðið í ameríku hér í kringum 1970 skilaði af sér frábærum bílum sem menn elska enn þann dag í dag. og það er aldrei að vita hvaða gullmolar eiga eftir að skríða frá þýskaranum núna í þeirra stríði.. mig hlakkar allavega til eftir 10-15ár þegar maður getur farið að eiga þessa bíla sjálfur.

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 156 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group