Besta BMW vélin - séð & heyrt

Hér skal spjalla um BMW.

Postby bebecar » Wed 13. Aug 2003 09:11

Mér finnst þetta bara óþolandi bilun... þeir hrúga sífellt stærri vélum í sífellt stærri bíla.

Þetta endar með því að minnsti bíllinn verður jafn stór og fyrsta sjöan var!

Mér fannst alveg nógu fáránlegt þegar þeir settu sexu í E36 M3, hvað þá ef það á að fara troða V8 vél í næsta bíl.

Ég segi bara back to basics og leyfa svo Alpina að troða of stórum vélum í of litla bíla - þeir eru góðir í því.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby arnib » Wed 13. Aug 2003 09:22

bebecar wrote:Mér fannst alveg nógu fáránlegt þegar þeir settu sexu í E36 M3, hvað þá ef það á að fara troða V8 vél í næsta bíl.


Markmiðið þeirra var augljóslega að búa til kraftmeiri bíl heldur en E30 M3,
væntanlega til að mæta kröfum samanburðarins við aðra bíla.
Þeir höfðu ára langa og góða reynslu af línu sexum.

Áttu þeir að taka 286/321 hestafl útúr I4 vél?

Eða meinaru að þeir hafi átt að halda sig í 194 hestöflum?
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Mal3 » Wed 13. Aug 2003 09:26

Þeir hefðu kannski bara átt að hafa bílinn léttari? :)

Mér finnst nú ekkert að því að smella sexu í E36 M3, enda hefði rúmtakið á fjarkanum þyrft að aukast sem hefur varla verið mjög vænlegt. Þetta hestafla kapphlaup er bara komið gersamlega út í öfgar í seinni tíð og snýst að því er virðist bara að troða sífellt stærri vélum í sífellt þyngri bíla.

Þýskaland er að verða eins og Detroit á 7. áratugnum...
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)
User avatar
Mal3
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 315
Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Location: Neðra

Postby bebecar » Wed 13. Aug 2003 09:26

Ég meina að þeir hefðu átt að halda þristinum í svipaðri stærð og hann var, halda sig við smooth sexur fyrir krúserana og skella sér svo í M3 CSL... skafa þyngd af bílnum og þróa vélina áfram... Þeir hefðu t.d. getað farið með rúmmálið í 3 lítra. Eða unnið að því að skila 280-300 hestöflum með áreiðanlegum hætti úr 4 strokka vélinni líkt og keppnisbílarnir gerðu.

Það sem ég er að skammast yfir er þessi sífellda stækkun á bílunum...
Polo í dag er stærri en fyrsti VW Golf bíllinn var! Golf er stærri en fyrsti Passatinn... Passatinn er líkelg aálíka stór og fyrsta sjöan var frá BMW - hvar endar þetta eiginlega?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Mal3 » Wed 13. Aug 2003 09:33

Mér finnst þetta komið í vitleysu þegar. Það er bara eitt atriði með að skella fjarkanum í 3 lítra og það er að svona stórir fjarkar eru oftast mjög grófir.

Porsche reddaði þessu í 944 með tveimur jafnvægisásum, tækni sem Mitsubishi (byrjum ekki aftur með fé til þróunar véla bullið...) á, eða átti, réttinn að. Þar með þurfti Porsche að greiða MMC gjald fyrir hverja framleidda vél eða bíl. Það er svo sem ekki vandamálið, en Porsche átti bara V8 og B6 vélar annars. BMW átti I6 á lager og mikla reynslu með þær þannig að lausnin fyrir fyrirtækin tvö var ólík, en að mínu mati jafn góðar í hvoru tilfelli.
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)
User avatar
Mal3
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 315
Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Location: Neðra

Postby Mal3 » Wed 13. Aug 2003 09:36

Svo má reyndar bæta við markaðssetningarfaktornum. Örugglega margir líta 944 hornauga vegna stimplafjölda og BMW var að reyna að selja bandaríkjamönnum háklassavöru. Við vitum hve mikið kanar snobba fyrir stimplafjölda!
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)
User avatar
Mal3
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 315
Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Location: Neðra

Postby arnib » Wed 13. Aug 2003 09:48

bebecar wrote:hvar endar þetta eiginlega?


Ég held að þetta endi hvergi, heldur fer þetta bara í hringi.
Sjáðu til, jú, Polo-inn núna er stærri heldur en fyrsti golfinn.

En það má ekki líta á þetta þannig að allir bílarnir séu að stækka.
Ef þú fylgist með stökum nöfnum, jú, þá er þetta þróunin. "Polo" er
núna stærri en fyrsti "Golf";

Aftur á móti má ekki gleyma því að það koma nýjir bílar í staðinn.
Það mætti segja að litli Skodinn (Felicia?) taki við af gömlum Polo, og Polo taki við af Golf. Skodinn er líka í svipuðum gæðaklassa eins og Polo-inn var og Polo-inn kominn í Golf klassann.

Ég held ekki að það séu neinir stærðarflokkar sem eru skildir eftir og
hætta að birtast, þeir birtast bara í öðru formi undir öðrum nöfnum.

Á sama hátt tökum við eftir því að E46 er svipaður að stærð og E34.
og E39 svipaður ekki langt frá E32.

En það má ekki gleyma því, að sama skapi, að BMW er núna að búa til 1-línu og 2-línu, er það ekki bara nýju "þristarnir" í stærð sem þér hentar prýðilega?
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby bebecar » Wed 13. Aug 2003 09:48

Jújú, enda rokseldist E36 M3 í USA.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Mal3 » Wed 13. Aug 2003 09:56

Reyndar má segja að VW Lupo taki við af Polo. VW Lupo er samt fitubolla miðað við upprunalega Golf.

Ég veit, framfarir í öryggismálum og allt það, en það mætti halda að það hafi ekki verið neinar framfarir nema í öryggisbúnaði. Aflmeiri vélar og betri dekk ásamt ýmsum fjöðrunargöldrum virðist aðallega ætlað að bera alla auka þyngdina.

Hvernig væri að þróa sterka OG létta bíla? Ó, ég gleymdi því, fæst fólk pælir í krafti í bílunum sínum og hvað þá aksturseiginleikum og "eigin þyngd" selur ekki bíla...
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)
User avatar
Mal3
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 315
Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Location: Neðra

Postby bebecar » Wed 13. Aug 2003 10:18

Porsche pældi í þessu með frumgerð bíls sem átti að vera einskonar nútíma fólksvagn og smíðaður með endingu í huga. Þau plön fóru ofan í skúffu.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Gunni » Wed 13. Aug 2003 10:20

og þetta er hundraðasta svarið :)

en e36 M vélarnar ráða, og hefðu ekki fyrir minn smekk mátt vera 4cyl.... ég hef komist á þá skoðun að ég er ekki hlyntur 4cyl vélum!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby benzboy » Wed 13. Aug 2003 10:21

Gunni wrote:ég er ekki hlyntur 4cyl vélum!

Amen
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

Postby Mal3 » Wed 13. Aug 2003 10:26

benzboy wrote:
Gunni wrote:ég er ekki hlyntur 4cyl vélum!

Amen


Prýðisfyrirkomulag fyrir marga bíla. Fyrirferðarlítil, létt, einföld og prýðismöguleikar á afli og fágun ásamt hljóm.

Lotus Elan væri einfaldlega hálfvitalegur með öðru en I4 og hann lætur sambærilega nútímabíla hafa það óþvegið.
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)
User avatar
Mal3
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 315
Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Location: Neðra

Postby Gunni » Wed 13. Aug 2003 10:47

Mal3 wrote:Lotus


Meinarðu þá as in klósettpappír eða ?
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby bebecar » Wed 13. Aug 2003 10:47

Sexan er auðvitað aðalsmerki BWM, en fjarkinn í E30 M3 var bara race vél og E30 M3 eini bíll BMW sem var í raun hannaður fyrir kappakstur er síðar gerður að götubíl með Homólegeríngu.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 40 guests

cron