Alpina wrote:
Róóóóólegir á fordómunum
Sammála því. Auk þess er þessi þráður kominn út í algjöra steypu. En varðandi það að skilja hunda eftir í bíl, þá er stundum ekkert annað í stöðunni fyrir hundaeigendur hér á þessu fúla Íslandi. Hér er þvílík hundaómenning miðað við önnur lönd, því þeir eru óvelkomnir á flestum stöðum. Svo reyndar snýst þetta líka um hvað hvað hver hundur er vanur. Minn hundur er með algjöra bíladellu og myndi liggja inni í bíl í heilan dag óbeðinn (enda ekkert skrítið því um BMW er að ræða, segið svo að dýr séu ekki gáfuð

). Það er auðvitað stórmunur hvort hundur er skilinn eftir í bíl í nokkrar mínútur eða marga klukktutíma. Mér finnst einn klukkutími alveg í lagi, en þá vil ég geta haft opna lúguna eða rifu á gluggunum. Og um það snýst topicið í þessum þræði. Þjófavörnin. Ég vil geta læst andskotans bílnum án þess að hún fari að væla af því að gluggi eða lúgan er opin. Ef menn hafi einhverjar lausnir hvernig hún er aftengd þá eru öll ráð vel þegin. En ef menn eru enn með einhverjar hundaathugasemdir þá bendi ég mönnum á rita þær á spjallsíðu hundaræktarfélagsins, því þetta er jú spjallsíða um BMW.