bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 07. Jun 2025 17:13

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 156 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 11  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 11:00 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Posts: 315
Location: Neðra
gstuning wrote:
Ef vinur þinn Murray segir að hestöfl sé ekki neitt ein og sér þá veit hann ekki JACK um vélar,

Allir sem vita eitthvað vita að það er bara hestöfl sem hreyfa bíla!!!
Tog = Átak, átak hreyfir ekki bíla


Murray kallinn veit nú ýmislegt ;) Þetta var nú bara skot, en það sem hann var að tala um að hestöfl ein og sér segja ekkert um bíla.

En m.v. það sem þú segir síðan sjálfur hlíturðu að sjá hve frábær umrædd vél er, með frábært high-end power en jafnframt sléttflata togkúrfu.

_________________
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 11:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Það er vegna þess að hún er með Vanos

hún ætti í raun að geta náð aðeins lægri max tog snúningum, mér finnst það bara

Einnig ef M5 vélin væri 6lítra þá væri hún með 600nm tog, og 480hö
Þegar nýja V10 vélin kemur þá sérðu hvað ég meina með að vera betri vél, sú vél verður með alveg klikkaðar kúrvu og hestafla tölur

ég giska á að nýja V10 verði fram þróun á V8 vélinni, eða down tjúnuð F1 vél,

Málið með að Mclaren sé með svona rosalega millihröðun er svo massa mikið af power fyrir 1150kg bíl, ef bíllinn minn væri með þessari vél þá væri hann hægari en McL. því að hann er þyngri og klýfur loft ekki jafn vel

Það er þyngdin á bílnum sem er að skipta öllu máli í hvernig þessi bíll er, á allan veg, allir bílar með 500nm@3000=210hö@3000 og eru 1150kg eiga eftir að þjóta áfram svo þegar 627hö kicka inn þá finnur maður hröðun, vélin er ekki það sem er að meika þennan bíl

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 11:33 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Posts: 315
Location: Neðra
Ég myndi nú halda að vélin sé eitt af því sem meikar þennan bíl, en hann er alls ekkert one-trick-pony.

Ég er bara alls ekki að sjá nein rök fyrir því að M5 V8 vélin og komandi V10 vél (sem greinilega er ansi lítið vitað um, þar sem þú ert ekki viss hvort það verði breytt V8 eða niðurtjúnnuð F1 vél, væntanlega verulega útboruð!) séu betri en hin 10 ára McLaren F1 vél. Þetta er auðvitað dýr rokkur sem er ekki smíðaður með kostnað í huga heldur alla aðra þætti.

Þessi vél er kannski "best" í skilningnum V12 vél í ofurbíl, óháð kostnaði (jöfnuð af Enzo V12 líklega), en við getum skilgreint ýmsar vélar sem bestar á mismunandi forsendum.

_________________
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 11:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Þetta verður aldrei nein niðurtjúnuð F1 vél í nýja M5 enda eru þær vélar ansi sérstakar og allt önnur vinna á bakvið þær.

Annars er hægt að sættast á það að báðar þessar vélar eru miklar listasmíð og erfitt að gera uppá milli enda ólíkar vélar byggðar á ólíkum tímum.

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 11:45 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég er nú sammála Mal3 hérna...

Ég sé bara ekki afhverju 400 hestafla V8, 5 lítra vél er eitthvað merkileg.

6. lítra V12 sem 637 hestöfl er mun merkilegri vél - og það má ekki gleymi aldri hennar.

Ég hef reyndar aldrei heyrt menn lofa vélina í E39 M5 eitthvað sérstaklega eins og hún sé afrek, líkt og gert var með McLaren F1 á sínum tíma og er gert með E46 M3 í dag.

Mér finnst V8 vélin í E39 M5 bara "lame" í samanburði við gömlu sexuna í M5.... 60 hestöfl í viðbót, en til þess eru notaðir tveir auka strokkar og 1.2 lítri í auka slagrými - það er nú bara heil vél í viðbót og ætti að minsta kosti að duga til að gera 100 hestöfl í viðbót.

Við vitum líka allir að það er vel hægt að tjúna E39 M5 í 550 hestöfl, t.d. með supercharger eins og eitthvert breytingarfyrirtækið gerir - en það er bara ekkert merkilegt.

Ekki veit ég hvað þessir bílar eru að skila mest svona N/A - en það er varla mikið meira en 450 hestöfl - sem samt er "bara" 90 hestöfl pr. líter.
Gamla sexan var að skila 89.5 hestöflum per líter og sú vél var hönnuð 1976 eða 77 ef ég man rétt...

Það má náttúrulega líka minnast á það að sú vél var hæglega tjúnuð í 500 hestöfl án þess að nota blower eða túrbó. McLaren F1 vélin gæti vel átt eitthvað aðeins meira inni en þessa 637 hesta eða hvað þeir voru margir.

Og að lokum þá er nú asnalegt að skjóta á Gordon Murray - mannin sem hannaði BESTA bíl í heimi sem líklega verður aldrei toppaður. hann hlýtur að vita hvað hann er að gera - ekki satt?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 11:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ég myndi segja að hún sé flott vél,

Þó að þeir hefðu alveg getað haft hana V10 og sparað meiri þyngd,
og haft hana overbore til að fá snúninga og jafn stóra

meira að segja V8 overbore og 6,1lítri.
Mögulega sparað slatta þyngd á því, kannski 20% í heildina

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 11:50 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Posts: 315
Location: Neðra
gstuning wrote:
Ég myndi segja að hún sé flott vél,

Þó að þeir hefðu alveg getað haft hana V10 og sparað meiri þyngd,
og haft hana overbore til að fá snúninga og jafn stóra

meira að segja V8 overbore og 6,1lítri.
Mögulega sparað slatta þyngd á því, kannski 20% í heildina


Ef maður snobbar í alvöru fyrir ofubílum telst ekkert undir 12 strokkum með ;)

Ástæðan fyrir að Murray vildi 12 stimpla veit ég ekki, en væri gaman að fræðast um það.

Annars er nú kannski óþarfi að setja Murray í guðatölu fyrir McLaren F1 (þó ég geri það nú samt :D ) en önnur verk hans tala sínu máli.

_________________
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 11:54 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Posts: 315
Location: Neðra
Annars finnst mér merkilegt að þú gagnrýnir F1 vélina fyrir að það hefði mátt fækka strokkum til að spara þyngd.

Nú er það ekki sjálfgefið að V8 sé þyngri en I6, en afvherju fór BMW á V8 í M5? Mér finnst þessi E39 M5 V8 alltaf merki þess að BMW hafi verið að velja auðveldu leiðina, bara meira rúmtak til að koma sínu höggi að í hestaflastríðinu. Þetta kemur líka í fyrsta M5 bílnum sem var ekki handsmíðaður og einmitt þá fer maður að gruna BMW um að hafa verið að gefa eftir, gerast smá sell-out.

E46 M3 tekur þessi 340 hö ca. úr 3,2l á meðan M5 tekur 400 úr 5l. Ég veit alveg hvort mig langar í E39 M5 eða E46 M3 ;)

_________________
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 12:12 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 03. May 2003 18:27
Posts: 834
Halló halló, enn einu sinni verið að bera saman epli og appelsínur. Það er náttúrulega augljóst að það er í raun og veru ekki til nein ein besta vélin. Eins og einhver benti á hérna er þyngd bílsins sem vélin á að fara í stór þáttur í þessu, sama gildir um aflrásina og síðast en ekki síst hver er markhópurinn fyrir bílinn. Að bera saman McLaren F1 og M5 (hvort sem það er E34 eða E39) útfrá vélunum er sennilega vitlausasti samanburður sem farið hefur fram á bílum / vélum á þessu spjalli (please engin comment um M5 vs. eitthvað annað nýlega því þetta er by far vitlausara).
Ekki taka því samt þannig að mér finnist eitthvað að því - þetta skapar fína umræðu en það fæst hinsvegar aldrei niðurstaða vegna þess hvað þetta eru ólíkir hlutir.

_________________
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 12:28 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
það er alveg hægt að þræta um vélar, mjög lítið mál. Ég sé ekki hvað sé vitlaust við þessa umræðu.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 12:29 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Posts: 315
Location: Neðra
Ég er einmitt sammála þér, svona verður aðeins skoðað út frá ákveðnum forsendum en ekki almennu sjónarmiði.

Pabbi, hvort er betra Chevy 327 Turbo-Jet eða Lotus Twin Cam?

_________________
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 12:30 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Einmitt... þetta er búið að vera frábær lesning og maður er búinn að fræðast mikið og hafa gaman af. Umræður sem eru rökstuddar eru skemmtilegar. Verst að maður er ekki það mikið inn í þessu að maður getur farið að commenta eitthvað af alvöru um þetta. En þá er bara að byrja að lesa sig til um þetta.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 12:35 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 13:18
Posts: 315
Location: Neðra
Einmitt, við getum líka strax ráðist á þá tilnefningu að McLaren F1 sé besti bíll í heimi. Hvað ætli hann eyði miklu? Hvað komast margir bónuspokar fyrir með barnavagninum? Kemst hann upp í Herðubreiðarlindir?

Útfrá því að verð sé ekki atriði má kalla hann besta bílinn. Kannski. Þegar maður les sér til um hann (nei, ég hef hvorki séð né ekið einum af þessum ca. 100, surprise!) er svo ótrúlegt hvað hvergi var til sparað, allt átti að vera fyrsta flokks. Það, ásamt því að hafa ríkt sem konungur ofurbílanna í 10 ár og í raun enn finnst MÉR gera hann bestan.

Bara það að hlusta á vélarhljóðin í honum gerir mig glaðan að það séu til menn eins og ákváðu að gera McLaren F1. Því það er ekkert annað en brjálæði og úr brjálæði verða til vestu bílarnir ;)

_________________
Kalli - Mal3
Bow down to Daihatsu power!
Daihatsu Charade TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 17:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Bebecar,

Þú þarft að fara að prófa nýjan M5 hann er með 500nm@3800=265hö í 3800rpm það er langtum betra en gamli 360nm@4750=239hö í 4750

BMW var bara mjög ánægðir með V8 vélina sína, og 5litra I6 er ekki sniðugt apparat, alltof langt stroke.

S38B36 er með 315hö í 6900 og það er 326nm
S62B50 er með 400hö í 6600 og það er 432nm
S62B50 væri með 417hö@6900 það væri þá 83.4hö á líter miðað við sama snúning og gamla vélin sem er 87,5hö á líter, en það sem segir söguna í raun er að nýja vélin tekur max tog í 3800 gegn 4750 í gömlu,

Ég held að það sé nokkuð augljóst hvor vélin sé betri
S62 er með lægri snúning á max togi sem sýnir betri kúrvu sem þýðir framþróun og meiri hröðun

Auðvitað verður BMW að taka þátt í hestafla kappinu, en það þykir mér gott að þeir noti ekki neitt turbo eða superchargera þegar allir aðrir gera það, það er afrekið þeirra

Sko, gamla 3,2 vélin var með max tog í 2500 en nýja vélin er með það í 4000 það þykir mér aftur för hjá bmw, frekar að stækka hana og fá meira overall hö í stað að snúa henni, note henni er snúið í 8000 sem er nálægt max fyrir I6

Ætlið þið að segja mér að BMW sé að slakka á????
Þegar M3 E36 outhandler flesta ofursportbíla sem eru framleiddir, sama með M5 bílinn hann outhandler marga "sportbíla" þetta er 1750kg fjölskyldubíll með skíði á toppnum og barnastól afturí,

I6 er bara cabable að ákveðnum hlutum,
BMW fílaði bara svo mikið 4.4 vélina að framþróun á henni sem var svo notuð í mörg DTM race og þessháttar leiddi að nýju M5 vélinni,

Ekki heldur byrja að segja mér að BMW M bíll sé ekki M bíll þótt að hann sé ekki handsmíðaður, það gæti enginn vitað munin, kannski voru 3.8 M5 bílarnir ekki handsmíðaðir heldur voru bara allir látnir halda það??

Einnig er til fyrirtæki sem setur nýjar M5 vélar í 500hö
Novak

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Aug 2003 17:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Það er kannski ekkert skrýtið að M5 skuli ekki vera handsamsettur lengur enda hefði BMW þurft að ráða ansi marga til að geta framleitt allan þennan fjölda af E39 M5. Þar liggur kannski stóri munurinn á þessum bílum, E34 var framleiddur í litlu upplagi sem nokkuð sérstakur bíll sem kostaði mikinn pening. En í dag hafa menn kannski meiri pening milli handana og BMW komst að því að það var mikil eftirspurt eftir M bílinum þannig að þeir fóru út í að fjöldaframleiða á færibandi. Þarf ekkert að vera síðri fyrir vikið bíll en ekki nærri jafn sérstakur og E34 M5 var og er.

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 156 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 11  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 31 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group