Siggi G wrote:já mig vantar svona "project" og snattara.. og óska ég eftir BMW í skiptum fyrir hjól sem ég á til og vantar að losna við.. ég skoða flest allt.
hérna eru upplýsingar um hjólið.
KTM 300cc EXC hjól sem ég tók uppí GasGas hjólið mitt.. KTMið er 2001 árgerð og er upphaflega enduruhjól, en búið er að fjarlægja öll ljós nema frammljós, nýlega upptekin mótor að mér skilst.. búið er að setja stærri bensíntank í það og eitthvað svona, hjólið er á nagladekkjum. það sér aðeins á hjólinu einsog gengur og gerist, annað væri nú bara óeðlilegt.. fylgja einhverjir hlutir með því, plastdót og nýjir bremsuklossar að framan og svona.. hjólið er tvígengis.
hjólið er bilað!! það brotnaði afturhjólalega og skemmdi afturgjörð, bremsudisk og eitthvað smotterý.. á að vera ekkert mál fyrir handlaginn mann að laga. ég hef einfaldlega ekki tíma í það og því fer hjólið í því ástandi sem það er. ég einfaldlega nenni ekki að gera við það.
það sem þarf að kaupa í hjólið er: bremsudiskur, keðja, tannhjól og miðja í afturgjörð.. tel ekki líklegt að það þurfi að kaupa heila gjörð.
upplýsingar í PM eða síma 693-4927 (Sigurður)
MYNDIR!
Users browsing this forum: No registered users and 19 guests