Ég lenti í því um daginn að aksturstölvan bilaði skyndilega um daginn.
Það hafði reyndar verið fyrir vandamál með hátalarakerfið í bílnum sem datt inn og út eftir eigin hentugleika og ekkert heyrðist(hélt fyrst að þetta væri sambandsleysi í rafkerfinu í vinstri hliðinni á bílnum því ekkert virtist að tölvunni) en eins og ég segi þá bilaði tölvukvikindið(það er áfram kveikt á henni en engir takkar virka og auðvitað þá ekki hljóðkerfið

)
Þetta hátalaravesen fór í taugarnar á mér fyrir en nú var mér öllum lokið.
En spurning mín er þá sú hvert best sé að fara til að tékka á þessu, geri þó ráð fyrir að það sé B&L, en eru kannski önnur ekki síðri verkstæði sem gætu bilanagreint og lagað þetta?(hvaða ráð sem er hjálpar)