Grænir skattar

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Grænir skattar

Postby Knud » Tue 17. Apr 2007 12:02

Ég var að horfa á fréttirnar á stöð 2 um daginn og þá var frétt um græna skatta, sem sagt að auka skatt á bíla sem fara yfir ákveðna mengunarstaðla. Hvað gerir fornbílaklúbburinn t.d ef þetta fer í gegn?
Er þetta en eitt peningaplottið? Mér finnst þetta ótrúlegt alveg og ekki fá þessir samþykkir þessum sköttum mitt atkvæði :roll:

tekið beint af vísir.is:

"Sjálfstæðisflokkurinn vill umbuna fólki fyrir umhverfisvænan lífstíl í stað þess að nota þennan málaflokk sem afsökun fyrir skattheimtu. Íslandshreyfingin, Samfylking og Vinstri grænir sögðu já og Samfylkingin telur að grænir skattar bæti samkeppnisstöðu nýrra lausna. Framsóknarflokkurinn segir hagræna hvata betri til árangurs en skatta, Frjálslyndir telja hugsanlegt að skatta mengunarvalda sem fara yfir sett mengunarmörk og Baráttusamtökin tala um grænar dagssektir ef mengunarvarnarbúnaður fyrirtækja er ófullnægjandi."
User avatar
Knud
Getawaybílstjóri
 
Posts: 731
Joined: Sat 28. May 2005 20:09
Location: rosaleg

Postby fart » Tue 17. Apr 2007 12:03

Þetta er ekkert sér-íslenskt dæmi. Evrópa er að kafna í þessum sköttum nú þegar.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Stanky » Tue 17. Apr 2007 12:08

Mér finnst þetta persónulega fínt framtak.

Maður þarf ekki 5,7ltr ford f350 til að fara út í bónus og kaupa í matinn.

Margir kaupa sér svona kraftmikla bíla (eins og margir á kraftinum) og nota þá sem hobbýbíla -> keyra hann á sumrin.

Það sem mér finnst að það ætti að gera fyrst er að fyrirtækjabílar verði hybrid. Það myndi minnka mengun til muna.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Djofullinn » Tue 17. Apr 2007 12:15

En ættu þá ekki skattar að lækka á móti á öðrum bílum?
Ef það yrði gert væri þetta fínt
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Knud » Tue 17. Apr 2007 12:16

Djofullinn wrote:En ættu þá ekki skattar að lækka á móti á öðrum bílum?
Ef það yrði gert væri þetta fínt


ágætis punktur hjá þér
User avatar
Knud
Getawaybílstjóri
 
Posts: 731
Joined: Sat 28. May 2005 20:09
Location: rosaleg

Postby gstuning » Tue 17. Apr 2007 12:22

Mér finnst persónulega bara fyndið hvað fólk er að spenda í einhverja trukka til að vera á innanbæjar einungis,

Nokkuð augljóst hvað fólk eyddi endurfjármögnunni sinni í síðustu árin.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Einarsss » Tue 17. Apr 2007 12:38

já... það er svo fyndið að sjá fólk á einhverjum svaka pickup truck og það eina sem það notar hann í er að keyra í vinnuna og til baka.

Ábyggilega fáranlega há prósenta sem á svona bíla og hefur nákvæmlega engan tilgang með því að eiga hann ... gæti alveg eins átt yaris sem uppfyllir sömukröfur
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby zazou » Tue 17. Apr 2007 13:57

fart wrote:Þetta er ekkert sér-íslenskt dæmi. Evrópa er að kafna í þessum sköttum nú þegar.

Eru þessir skattar afturvirkir?

einarsss wrote:já... það er svo fyndið að sjá fólk á einhverjum svaka pickup truck og það eina sem það notar hann í er að keyra í vinnuna og til baka.

Ábyggilega fáranlega há prósenta sem á svona bíla og hefur nákvæmlega engan tilgang með því að eiga hann ... gæti alveg eins átt yaris sem uppfyllir sömukröfur

Ég bíð eftir kommenti frá asíska látúnsbarkanum :lol:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Freyr Gauti » Tue 17. Apr 2007 14:56

Er nokkuð verið að tala um bíla í þessu frumvarpi? Er ekki verið að meina sektir á fyrirtæki?
Freyr Gauti
Getawaybílstjóri
 
Posts: 645
Joined: Sun 03. Oct 2004 19:08
Location: Akureyri

Postby Aron Fridrik » Tue 17. Apr 2007 15:58

hmm.. hefur sýna hnökkra líka.. t.d. eigum við feðgar saman Ford explorer.. hann er breyttur á 46 tommu dekkjum, með 5.8V8 vél og allt það.. hann er notaðir í 3 ferðar á ári annars er hann geymdur inn í skúr.. hann er líka á fornbílaskráningu þannig að við borgum lítið af honum og getum því haft hann sem leiktæki sem tekið er úr þegar það er "gott" veður..

yrði frekar asnalegt að fara að borga af honum auka mengunarskatt þegar hann mengar margfalt minna á ári en yaris í daglegum akstri..
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby fart » Tue 17. Apr 2007 17:20

Nei skattarnir eru ekki afturvirkir hérna, en þeir eiga bara eftir að hækka. Það fáránlega við skatta sem byggjast á eyðslu er það sama og er fáránlegt við að borga meiri toll fyrir stærri mótor eða hærri birfreiðagjöld fyrir stærri bíl... því þessir skattar segja ekkert til um hvað bíllinn er mikið notaður.

Auðvitað ættu öll gjöd að miðast við notkun bílsins, því að bíll sem stendur kyrr mengar ekkert, og bíll sem stendur kyrr eyðir engum vegum.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby íbbi_ » Tue 17. Apr 2007 19:08

ég bara ´skil ekki hvað fólk þarf alltaf að vera tuða yfir því að menn kauði sér stóra pallbíla.. meiga menn ekki eiga það sem þeir vilja? meina sumir fíla þessa bíla og þetta er þeirra hobbý rétt eins og við sumir erum á bílum sem komast hratt..
ég hef ekki orðið var við að ég fái aldrei stæði af því að einhver pickup hafi lagt í öll stæðin í bænum..
og ´´eg reyndar sjálfur hef mjög gaman af sona pikkum, finnst þeir flottir og mjög gaman að keyra þá, og ætti eflaust einn sveran ef ég hefði efni á því, og þætti nú hálf fúlt ef ég mætti það ekki, ég vel 10 sinnum meiri hættu á camaronum mínum út í umferðini
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Schulii » Tue 17. Apr 2007 22:42

Þetta hefur ekkert með hættu að gera. Þetta er sjálfsagt klisjað en við erum bara að rústa þessum hnetti með eigingjarnri hegðun og það er bara verið að gera eitthvað í því. Þýðir ekkert að segja "já, skelfilegt hvernig þetta lítur út með þessa jökla sem eru að bráðna og eiga eftir að setja fullt af borgum á kaf en ég er bara ekki til í að láta þetta hafa áhrif á budduna mína neitt, ég vill bara fá mína skemmtun og ekki leggja neitt af mörkum!!!"

En jújú, eflaust eru einhverjir vankantar eins og Fart bendir á en það verður bara að þróast og allt það. Ég er allavega hlynntur þessu og það eina sem gerist er að maður stendur bara frammi fyrir valkosti. Er ég tilbúinn til að borga þetta fyrir að eiga svona bíl!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby íbbi_ » Tue 17. Apr 2007 23:35

jájá það er engin lýgi að mitt álit er eigingjarnt og óálitlegt, engu síður veit ég bara hvað ég hef á milli handana og hvað mig langar í
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby JonFreyr » Wed 18. Apr 2007 17:09

Mér finnst þessi hugmynd vera frekar kjánaleg. Mitt álit.

Væri ekki mikið frekar að fella niður tolla og aðflutningsgjöld af umhverfisvænum bílum? Þeir væru þá á viðráðanlegu verði. Markaðurinn er bara þannig í dag að bílaframleiðendur eru að smíða stórar og eldsneytisfrekar vélar fyrir ákveðinn markaðshóp og sá hópur hefur stækkað undanfarin ár. Mér finnst sniðugara að hafa þetta eins og þungaskattinn forðum, fast krónugjald á hvern kílómetra. Setja ákveðin mengunarmörk og þegar yfir viðmiðið er komið að þá skal greiða kílómetragjald.

Þetta eru bara mín 2 cent, finnst bara hrikalega vitlaust að hérna eigi að drulla niður álverum með allri þeirri mengum sem þeim fylgir á meðan bíleigendum er refsað fyrir að menga. Öll þessi umræða um nær mengunarfrí álver er alveg komin út fyrir öll velsæmismörk. Hvergi er tekin inn í þetta umgjörðin, flutningur til og frá álveri og sú orka sem fer í að keyra áfram reksturinn í kringum ál-iðnaðinn. Er fólk kannski að gera sér grillur um að súrálið komi syndandi til landsins og syndi svo tilbaka sem fullvaxnir og umhverfisvænir álklumpar að vinnslu lokinni?

Hvernig væri að koma upp almennilegu strætókerfi, jafnvel rafmagnslestum á milli bæjarfélaga áður en við hengjum almenning fyrir að eiga einkabifreið? Þetta eru nágrannalöndin að gera og hafa gert í fleiri herrans ár, getum við ekki apað þetta eftir þeim eins og flest annað?
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 37 guests