BMW E30 M52B28 Mtech I

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Postby Bandit79 » Sun 15. Apr 2007 04:57

gunnar wrote:
Angelic0- wrote:jæja, þá verður maður bara að bíða þartil að bíllinn mætir aftur á klakann...

Keep us posted með það hvernig gengur í ferðinni....

Það er svo gaman að eiga fine myndir af bílunum sínum í flottu umhverfi ;)

Mér finnst alltaf svo skrítið að sjá Íslenskar plötur í útlöndum ;) það er bara eitthvað svo töff við þannig myndir ;)

hvernig er túrnum samt raðað, hverjir eru ákveðnir viðkomustaðir ?


Um leið og við lendum í Hanstolm í Danmörku munum við keyra niður til Schmiedmanns, þar verður bíllinn í nokkra daga meðan við verðum í góðu yfirlæti hjá pabba kærustu minnar í Malmö í Svíþjóð.

Þegar sá pakki er tilbúinn brunum við beint til Þýskalands, förum reyndar bara rétt inn til Þýskalands og höldum beint til Hollands, Lúx og Belgíu.

Næsta alvöru stopp verður í Amsterdam, stoppum þar í svona tvo daga.

Þaðan verður svo farið til borg ástarinnar, Parísar, reikna nú með 4 dögum þar.

Svo þegar búið er að keyra niður allt frakklands munum við taka einn dag í Monaco, og þaðan niður til Ítalíu.

Á ítalíu ætlum við til flórens, rómar, pompei, feneyja og fleiri góðra borga,

Svo verður haldið til Austurríkis og Vín tekin örlítið og skoðuð.

Svo er annað hvort stefnan á að keyra í gegnum Tékkland og beint inn til Kraká í Pólland eða keyra framhjá Tékklandi í gegnum Þýskaland og taka þá Nurnbergring, stuttgart, og alla þessa staði og fara svo til Póllands.

Eigum eftir að ákveða almennilega með það.

Ætlum að vera ca 3 daga í Póllandi, skoða Auschswitz og Saltnámurnar og versla einhvað pínulítið.

Loka stoppið verður svo í Noregi hjá móður minni sem býr þar, endum ferðina þar og tökun Norrænu frá Bergen 21. Júni svo til baka.

Þetta er planið svona í grófum dráttum, við höfum ekki gert mikla tímalínu enda er það alveg vitað að það er alltaf sveigt og engan veginn hægt að fylgja því. Enda höfum við nógan tíma og ákveðum hlutina svolítið bara eftir því hvernig þetta spilast.


fyrst og fremst færðu bara mad props fyrir bílinn!!! :clap: :clap: hann er bara glæsilegur!

Og mér lýst vel á ferðina þína .. been there, done that (fyrir utan pólland).
Farið í Eiffel turninn .. þótt það eru langar raðir, þá er það alveg biðinar og peningana virði! Mónako er snilld og þú átt bara eftir að sjá NICE bíla þar 8) . Við fórum ekki til rómar þótt það var freistandi en tíminn var naumur. Þetta er gríðarlega mikil keyrsla sem þú ert að leggja í og ég mæli með að þú takir því rólega og gefur þér tíma til að teygja úr þér allavega á 4 tíma fresti... trust me (var nálælgt því að fá hemóroids út af þessari keyrslu .. no joke!) Farðu frönsku riveríuna og ítölsku.. bara FALLEGT .. ekki oft sem maður sér svona fallegt landslag. Athugaðu kortin vel ef þú ætlar framhjá Nice .. taktu þjóðveginn í kringum Nice .. ekki fara inn í Nice . .allavega ekki milli 3-6 að degi til .. brjáluð umferð!!! og ég segi það aftur BRJÁLUÐ!!! Paris .. parkaðu bílnum svona 10-15 km frá Paris og takið subway.. ef þú villt fá bílinn heim í heilu lagi :D kostar 24 evrur fyrir dagskort fyrir 2 í allar subways í paris-svæðinu.. mjög auðvelt að rata og mjög þægilegt. Holland er snilld .. Austurríki er bara flott .. mikið af fjöllum og flott náttúra .. góðir þjóðvegir :) .. ef þú nærð ferju frá hirtshals-Bergen .. þá ertu í góðum málum .. pantaðu miða strax .. alltaf uppbókað á norrænu-dögum .. ef þú ferð hirtshals-kristiansand .. gefðu þér góðan tíma til að keyra .. norsku vegirnir eru rusl ... það eru 480 km frá kristiansand-Bergen og það rekur TÍMA að keyra þennan spöl þó það hljómar ekki til að vera mikið! tók okkur frá ca.13:00-04:00 að keyra þenna spöl!!! krappar beygjur..2 akreina vegir mesta alla leiðina... 3 innanlandsferjur! En það hafðist fyrir rest :)

Bara nokkrir pointers.. langar að gera þetta aftur en gamli er búinn að fara 17.000 KM sumarið 2005 og 2006 .. hann fær að slappa af í sumar :lol:

En gangi þér vel og keyrðu varlega..

nokkrar myndir bara svona upp á fjörið 8)

Image
Nasty dúfa á Saint markúsartorgi í feneyjum

Image
Bergen í noregi

Image
Giant cruiseliner í Feneyjum
BMW E34 525i Sedan 1991 *LSD*
BMW E36 320i Touring 1995 .. seldur
BMW E34 520i Touring 1994 .. seldur
BMW E36 320i 1997 Seldur .. í partamat í DK
BMW E39 525D Touring 2003 seldur ... snilldar tæki
BMW E34 525i 1992 seldur með mikilli eftirsjá
User avatar
Bandit79
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1064
Joined: Thu 12. May 2005 12:34
Location: Selfoss/Hveró

Postby gunnar » Sun 15. Apr 2007 05:06

Takk kærlega fyrir þessa punkta. Og endilega ef menn hafa einhverja skemmtilega staði að skoða þá smella þeim hingað inn, ég er opinn fyrir öllu.

Einnig líka meðan ég man, er ekki einhvað svona euro bmw númer sem maður getur hringt í ef bíllinn hjá manni bilar? :oops: bara svona justin case.... :? :?
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby saemi » Sun 15. Apr 2007 11:25

gunnar wrote:Svo er annað hvort stefnan á að keyra í gegnum Tékkland og beint inn til Kraká í Pólland eða keyra framhjá Tékklandi í gegnum Þýskaland og taka þá Nurnbergring, stuttgart, og alla þessa staði og fara svo til Póllands.



Smá misskilningur hér. Nurnberg er ekki sama og Nurburg. Hringurinn er kenndur við seinni bæinn sem er ekki stórborg eins og fyrra nafnið.

Enda heitir hringurinn Nurburgring.

:wink:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby bimmer » Sun 15. Apr 2007 11:45

Fyrst að þú ferð til Ítalíu þá skaltu nú koma við í Maranello og kíkja á
Ferrari safnið.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby gunnar » Sun 15. Apr 2007 12:07

saemi wrote:
gunnar wrote:Svo er annað hvort stefnan á að keyra í gegnum Tékkland og beint inn til Kraká í Pólland eða keyra framhjá Tékklandi í gegnum Þýskaland og taka þá Nurnbergring, stuttgart, og alla þessa staði og fara svo til Póllands.



Smá misskilningur hér. Nurnberg er ekki sama og Nurburg. Hringurinn er kenndur við seinni bæinn sem er ekki stórborg eins og fyrra nafnið.

Enda heitir hringurinn Nurburgring.

:wink:


Smá type-o hjá mér. :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby JOGA » Sun 15. Apr 2007 14:12

Glæsilegur bíllinn :o

Ég hef farið tvisvar til Krakow og það er virkilega skemmtileg borg. Mjög gaman að skoða útrýmingarbúðirnar og Saltnámurnar er líka gaman að skoða.
Keyra svolítið agressíft þarna en ætti alveg að ganga samt.

Mæli líka með Svartaskógi og Baden Baden ef þú átt leið þar um. Mjög fallegt og svo er mjög gaman að keyra franska sveita vegi þaðan upp til Lúx t.d. Lýst svo vel á ráðleggingar hér að ofan um að skilja bílinn eftir fyrir utan París t.d.

Ég hef reyndar ekki keyrt í París en þegar maður nálgast stórarborgir geta hlutirnir orðið verulega ruglingslegir, sérstaklega ef maður er að flýta sér eitthvað. Gangi þér vel og endilega póstaðu inn eins oft og þú getur. Góða ferð!
Last edited by JOGA on Sun 15. Apr 2007 14:16, edited 1 time in total.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Postby Aron Fridrik » Sun 15. Apr 2007 14:14

já.. góða ferð.. trúi ekki öðru en bíllinn verði ljúfur á ferðinni :wink:
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby Geirinn » Sun 15. Apr 2007 15:37

Varðandi það að norsku vegirnir séu rusl, það er satt.

Kerfið þarna er víst þannig að vegirnir eru betri eftir því sem þingmennirnir frá svæðinu eru fleiri :)

Þau svæði sem eru með fáa/enga þingmenn eru bara algjört rusl :)

Samt þvílíkt gaman að keyra allar beygjurnar í skógunum þegar lítil umferð er.

Taktu líka eftir því ef þú keyrir þarna eitthvað, ef þú ferð yfir brýr þá gæti verið þurrt öðrumegin og rigning hinumegin, bara funky.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby gunnar » Sun 15. Apr 2007 16:30

Heyrðu smá rúðuþurrkuvesen. Komst af því af hverju pisserinn virkar ei.

Búinn að skipta um dælu, hún virkar en T tengið sem er á húddinu virkar ei.

Þetta er svona hné sem dreifir úðanum í sitthvora "rúðupisssprauturnar"

Mitt hné er stíflað, er einhver sem á þetta ?!?!?!
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby JOGA » Sun 15. Apr 2007 16:35

gunnar wrote:Heyrðu smá rúðuþurrkuvesen. Komst af því af hverju pisserinn virkar ei.

Búinn að skipta um dælu, hún virkar en T tengið sem er á húddinu virkar ei.

Þetta er svona hné sem dreifir úðanum í sitthvora "rúðupisssprauturnar"

Mitt hné er stíflað, er einhver sem á þetta ?!?!?!


Er ekki hægt að taka þetta bara út og leggja í kók t.d.
(Works wonders skilst mér :wink: )
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Postby Stanky » Sun 15. Apr 2007 16:55

gunnar wrote:Heyrðu smá rúðuþurrkuvesen. Komst af því af hverju pisserinn virkar ei.

Búinn að skipta um dælu, hún virkar en T tengið sem er á húddinu virkar ei.

Þetta er svona hné sem dreifir úðanum í sitthvora "rúðupisssprauturnar"

Mitt hné er stíflað, er einhver sem á þetta ?!?!?!



Taktu það úr... og boraðu með mjög mjóum bor í gegn bara.... Ég gerði það og það virkaði :D

(ráð frá Gunna í gstuning) :)
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby gunnar » Sun 15. Apr 2007 17:22

Heyriði... :lol:

Sko. ég búinn að redda mér öðru svona stykki.

Núna kemur spraut útum báða spíssa. En það kemur lika útum götin sem eru á T stykkinu. Það eru sem sagt pínulítil göt á þessu T stk sem ég veit ekki hvað í anskotanum gerir. En það sem sagt kemur eiginlega meira úr þessi litla gati heldur en útum spíssana.

Hvað gerir þetta litla gat og er einhvað því til fyrirstöðu að ég loki því.

Veit þetta enginn ?
Last edited by gunnar on Sun 15. Apr 2007 17:36, edited 1 time in total.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby ///M » Sun 15. Apr 2007 17:25

bimmer wrote:Fyrst að þú ferð til Ítalíu þá skaltu nú koma við í Maranello og kíkja á
Ferrari safnið.


mér fannst miklu skemtilegra að kíkja til lambo en ferrari
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby gunnar » Sun 15. Apr 2007 18:16

Heyriði, hvernig þarf maður að keyra alltaf með ljósin kveikt á daginn úti í Evrópu, ?

Bara pæla upp á xenonið, að vera ekki að hita ljósin of mikið.

Ætli maður megi bara keyra með kveikt á kösturunum ? :P
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby jon mar » Sun 15. Apr 2007 19:53

gunnar wrote:Heyriði, hvernig þarf maður að keyra alltaf með ljósin kveikt á daginn úti í Evrópu, ?

Bara pæla upp á xenonið, að vera ekki að hita ljósin of mikið.

Ætli maður megi bara keyra með kveikt á kösturunum ? :P


er ekki verið að tala um að ljóskerin hitni ekki næstum því eins mikið með xenon heldur en venjulegum sterkum perum.

Allavega getur maður vel lagt höndina yfir ljóskerin hjá mér og brennt sig ekki. Hinsvegar átti maður það til þegar maður var að rice-a hér í denn með xenon lookalike peurm :lol:
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 41 guests

cron