JOGA wrote:gunnar wrote:Ég prufaði að setja straum beint á hana úr 12 v og hún fór ekki í gang

Ég er í sömu vandræðum með minn. Reyndar ekki búinn að athuga hvort þetta séu stíflaðir spíssar eða dælan.
Getur tekið plöggið af dælunni og sett straum beint á hana.
En já,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,, Afturstuðarinn kominn á....... Og er vægast sagt hryllingur að sjá bílinn
Það er eins og bíllinn sé með USA bumpers að aftan

Endastykkin eru svo stutt og asnaleg að þetta er allt í volli..
En það þýðir ekki að gráta það, panta þetta bara hjá schmiedmann úti og hann mun þá væntanlega koma til með að losna við þessa útlitsvörtu.
En djöfull er leiðinlegt að festa þennan stuðara á með kittinu,,, eruði að grínast. Menn með fullvaxta handleggi (ekkert anorexíukjaftæði hér á bæ) koma ekki handlegg sínum inn á milli svuntunnar og bílsíns með góðu móti. Fossblæddi eftir þessi átök
En inspection á morgun , býst nú við að fá endurskoðun jafnvel útá pisserinn en það skiptir mestu að fá bílinn á götuna og byrja að prufukeyra fyrir túrinn.