Stal þessari mynd frá Sæma
Um er að ræða upprunalegan '84 módel af 745, sem er 3.5 turbo.
Reyndar er sú vél núna í sexunni hans Sæma og hjartað er "einungis" 3.5 non turbo. Ástand á boddý er mjög gott, ryð lítið sem ekkert. Eina sem er ryðgað er farþegahurðin frammí, en það fylgdi önnur góð með (sem komst í skottið!)
Það er nánast fáránlegt hvað er mikið af aukabúnaði í bílnum sem dæmi má nefna
#Rafdrifnar rúður
#Rafdrifin sæti
#Fjarstýrt farþegasæti að framan úr miðjustokk aftur í
#Stýring fyrir útvarp úr miðjustokk aftur í
#Læst drif
#Aksturstölva
#Gardína í afturrúðu
#Buffaló leðursæti
Þessi bíll þarfnast reyndar smá umhugsunar, sem dæmi má nefna að glæran er farinn að flagna aðeins hér og þar.
Það sem stendur til fyrst er að selja E34 540 svo ég geti sópað seðlum í þennan
Það á að taka þennan í gegn í sumar og hafa gaman að.
Skal reyna að henda inn myndum og koma með smá upplýsingar um hvað er í gangi
kveðja,
Einn trylltur E23 eigandi

