Bíllinn minn er byrjaður að væla / syngja.

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Bíllinn minn er byrjaður að væla / syngja.

Postby krullih » Sat 07. Apr 2007 13:36

Jæja - enn og aftur leita ég til ykkar vegna bilana þar sem þið eruð helmingi skárri en L2C þjóðin :)

Ég er með nissan sunny 1995 árgerð - undanfarið hefur hann verið að væla / syngja svona inná milli þegar ég er að keyra og hefur þá hingað til alltaf dugað mér að hreyfa smá við stýrinu og þá fer það í svona 10 mínutur aftur.

Een í gær og í dag er þetta búið að ágerast töluvert, t.d tók ég hringtorg sem var vinstri beygja og hann söng í gegnum allt torgið! og fleiri svona moment.

Hafiði tillögu hvað gæti verið að ?
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Re: Bíllinn minn er byrjaður að væla / syngja.

Postby Bjarkih » Sat 07. Apr 2007 13:42

krullih wrote:Jæja - enn og aftur leita ég til ykkar vegna bilana þar sem þið eruð helmingi skárri en L2C þjóðin :)

Ég er með nissan sunny 1995 árgerð - undanfarið hefur hann verið að væla / syngja svona inná milli þegar ég er að keyra og hefur þá hingað til alltaf dugað mér að hreyfa smá við stýrinu og þá fer það í svona 10 mínutur aftur.

Een í gær og í dag er þetta búið að ágerast töluvert, t.d tók ég hringtorg sem var vinstri beygja og hann söng í gegnum allt torgið! og fleiri svona moment.

Hafiði tillögu hvað gæti verið að ?


Fyrirgefðu Off-topic. En ég bara varð, ég vona svo sannarlega að þú takir engin hringtorg hér á landi sem eru hægri beygja :lol:

Varðandi hljóðið þá er það eina sem mér dettur í hug eitthvað varðandi stýrisdæluna en þar sem ég er algjört noob á þessu sviði þá er betra að bíða eftir hæfari einstaklingum með svör.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby Aron Fridrik » Sat 07. Apr 2007 14:19

vantar annaðhvort sjálfskiptivökva á stýrisdæluna eða maskínan er bara að einfaldlega að fara..

dettur allavegana ekkert annað í hug..
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby Angelic0- » Sat 07. Apr 2007 15:02

aronisonfire wrote:vantar annaðhvort sjálfskiptivökva á stýrisdæluna eða maskínan er bara að einfaldlega að fara..

dettur allavegana ekkert annað í hug..


Ég held að þetta sé rökvísasta svarið við þessu...

Stýrisdælan er að gefa upp öndina eða þá að það vantar á hana vökva :)
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Svessi » Sat 07. Apr 2007 21:11

Ég er nú alveg sammála þeim sem skrifa hérna á undan mér, en áður en þú ferð að bæta á dæluna eða jafnvel rífa hana úr þá ættiru að byrja á því að kíkja á reimina sjálfa. Getur verið að hún sé orðin slöpp, laus eða jafnvel of mikið strekt (sem mér finnst ósennilegasta í þessu tilfelli), allt af þessu getur orsakað væl.

Ágæt leið til að kíkja á þetta er að láta einhvern snúa stýrinu á meðan bíllinn er í lausagangi og athuga hvort reimin "víbri" eða sjá þá kannski betur hvort hljóðið kemur frá reiminni eða dælunni sjálfri.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 40 guests