Balansering utan á felgu

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Balansering utan á felgu

Postby Giz » Thu 05. Apr 2007 09:25

Daginn og gleðilegt komandi páskaegg.

Mig langaði bara að forvitnast um hvort það væri ekki löngu löngu hæltt að balansera felgur að utanverðu. Ég var að láta skipta á sumardekkin í umboðinu og hreinlega féllust hendur þegar ég kom og sá að það eru þessir fínu kubbar utan á fínu felgunum mínum!! Það má segja að ég hafi ekki orðið neitt of ánægður enda er þetta ógeðslega ljótt að mínu mati.

Sum sé er þetta eðlilegt eður ei, ég vil allavega ekki sjá þetta.

G
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Postby Einarsss » Thu 05. Apr 2007 09:37

þegar ég setti nýju felgurnar undir hjá mér um daginn þá var þetta límt á innanverða felguna.

Það var gert hjá bílabúð benna
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Berteh » Thu 05. Apr 2007 09:50

Það fer bara alveg eftir felgunni, Það eru margar sem eru með rönd til að lemja blýið á og þá er það gert :)
En í þeim tilvikum þar sem engin slík rönd er til staðar er límt blý á felguna að innanverðu
User avatar
Berteh
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 307
Joined: Sat 09. Dec 2006 22:29
Location: Reykjavík

.

Postby JonFreyr » Thu 05. Apr 2007 09:53

Það fer alveg eftir verkstæðinu hvernig þetta er gert, þegar ég verslaði minn STI að þá kom hann original með blýklumpum á utanverðri felgunni. Gyllt felga með gráum blýklump :) það er bara race :lol:
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn

Postby Giz » Thu 05. Apr 2007 10:00

OK, ég var kannski ekki alveg nógu og nákvæmur.

´98 e36 323i Sport á 16" BMW Forde Spoke felgum, svona:
Image

Það eru hvorki högg, skörð né rispur á felgunum að nokkru leyti og dekkin eru góð. Þessi sömu dekk voru á þessum sömu felgum áður án utanáliggjandi balanseringar. Einnig var ekkert utanáliggjandi með vetrardekkjunum þannig að mér finnst þetta alltsaman hið undarlegasta mál.

Það er vissulega smá kantur á þeim en af hverju hefur það þá aldrei verið notað áður? Er verið að fara ódýru leiðina að venju eða?

Ég er bara verulega pirraður yfir þessu og langaði að vita hvað þið vitið um þetta áður en ég fer eitthað að rífa mig :D

G
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Postby Hannsi » Thu 05. Apr 2007 11:03

þegar ég var að vinna á dekkja verkstæði, þá var bara barið utan á felgur sem var þegar búið að berja á (s.s ef það var ekki orginal og ljótar felgur)

Eða spyrja eigandan :)
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby Jónas » Thu 05. Apr 2007 12:23

Sama hér, er á verkstæði og ég ber ekki utaná álfelgur nema felgan er það ónýt að það er ekki hægt að líma inní hana.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby ömmudriver » Thu 05. Apr 2007 13:09

Ég mundi ekki hika við að láta þá taka þessa balanseringu af og líma innan á felgurnar í staðin !! Þetta er bæði ljótt og í sumum ef ekki öllum tilfellum þá tærist álið í kringum blýið.
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Postby srr » Thu 05. Apr 2007 14:21

ömmudriver wrote:Ég mundi ekki hika við að láta þá taka þessa balanseringu af og líma innan á felgurnar í staðin !! Þetta er bæði ljótt og í sumum ef ekki öllum tilfellum þá tærist álið í kringum blýið.

Það eru spes lóð fyrir álfelgur. Hence, tærist ekki.

Það eru til eftirfarandi tegundir af lóðum fyrir fólksbíla:

Venjuleg blý m/klemmu (notkun að hætta, EES búið að banna notkun blýs)
Álfelgulóð m/klemmu (notkun einnig að hætta, blýmagn í þeim er bannað)
Álfelgulóð húðuð m/klemmu (notkun einnig að hætta, blýmagn í þeim er bannað)
Límd lóð úr stáli
Límd lóð úr zink (Mun dýrara en stál, en tærir aftur á móti ekki álfelgur)
Zink lóð m/klemmu fyrir stálfelgur
Zink lóð m/klemmu fyrir álfelgur

Ie, Zink er arftaki blýs sem lóð á felgur.
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby ömmudriver » Thu 05. Apr 2007 14:24

srr wrote:

Ok, góðar fréttir :)
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Postby Lindemann » Thu 05. Apr 2007 14:37

í lang flestum tilfellum er alveg nóg að setja innaná felguna, það tekur bara örlítið meiri tíma.

Í þínu tilfelli myndi ég bara fara til þeirra og láta þá balansera aftur og ekki setja utaná.
Það er ekki nema það sé eitthvað mikið ójafnvægi sem það þarf að setja utaná líka og það á ekki að vera nema eitthvað sá að(skökk felga eða skemmt dekk)
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby ///M » Thu 05. Apr 2007 14:57

srr wrote:
ömmudriver wrote:Ég mundi ekki hika við að láta þá taka þessa balanseringu af og líma innan á felgurnar í staðin !! Þetta er bæði ljótt og í sumum ef ekki öllum tilfellum þá tærist álið í kringum blýið.

Það eru spes lóð fyrir álfelgur. Hence, tærist ekki.

þá er greinilegt að það nota ekki öll dekkjaverkstæði þessi spes álfelgu lóð :roll:
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby srr » Thu 05. Apr 2007 15:04

///M wrote:
srr wrote:
ömmudriver wrote:Ég mundi ekki hika við að láta þá taka þessa balanseringu af og líma innan á felgurnar í staðin !! Þetta er bæði ljótt og í sumum ef ekki öllum tilfellum þá tærist álið í kringum blýið.

Það eru spes lóð fyrir álfelgur. Hence, tærist ekki.

þá er greinilegt að það nota ekki öll dekkjaverkstæði þessi spes álfelgu lóð :roll:

Jebb, hin eru dýrari í innkaupum.
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby Hannsi » Thu 05. Apr 2007 15:14

Zink :roll:

Drasl að Guðs náð!!
Zinkið er næstum helmingi fyrirferðameira en blýið.

Sem betur fer var ég hættur á dekkjaverkstæðinnu áður en það var komið í notkun.
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby srr » Thu 05. Apr 2007 17:15

Hannsi wrote:Zink :roll:

Drasl að Guðs náð!!
Zinkið er næstum helmingi fyrirferðameira en blýið.

Sem betur fer var ég hættur á dekkjaverkstæðinnu áður en það var komið í notkun.

Hvort viltu fá krabbamein eða hafa stærri lóð á felgunum þínum? :lol:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests