by MRA530d » Sun 22. Apr 2007 11:52
Sæll og til hamingju með að velja einn besta bíl sem BMW hefur smíðað. Fékk mér sjálfur 530d 2002 módel í fyrra og er enn með brosið frosið. Þetta er bara snilldarvagn út í eitt.
Ég er líka með sjónvarp og NAVI en þær skýringar sem ég hef fengið eru þær að BMW gerir samning við mismunandi framleiðendur svona tækja með reglulegu millibili. Þeir sem framleiddu fyrir BMW 2002 eru ekki endilega þeir sömu og framleiddu svo TV/NAVI fyrir BMW 2003. Þetta er stærsta klúðrið fyrir kaupendur bílanna. Mér skilst að þeir sem framleiði tækin sjái um að gera kortadatabase-ana fyrir sín tæki. Skiljanlega þá eru þeir ekki allir til í að vinna gögn fyrir Ísland, allt of lítill markaður til að sú vinna borgi sig. Það sem mér finnst reyndar hlægilegast af öllu í þessu eru að þessir gúrúar vilja ekki einu sinni kaupa og selja gögn sín á milli!!! Þeir vilja frekar vinna allt frá grunni í hvert skipti sem mér finnst alveg ótrúlega bjánalegt.
En, svona er þetta og við sem kaupendur bílanna (á Íslandi) þurfum að bíta úr nálinni með þetta og eyða peningum í að nýta þetta með alls kyns monkey business. Gangi þér vel annars og ef þú gerir eitthvað í þessu þá vildi ég gjarnan heyra hvernig þú leysir þetta hjá þér. Sjálfur hef ég ekki getað ákveðið hvað ég geri í þessu.
At the speed of sound, what is the sound of speed?