Alltaf sér maður eitthvað nýtt

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Alltaf sér maður eitthvað nýtt

Postby Frikki » Tue 27. Mar 2007 12:01

Já ég veit þetta er voðalega pointless en ég hló mig máttlausan.

Var að keyra niður Ártúnsbrekkuna áðan, tekur VW Passat á einhverjum voða bling felgum og síðan fer hann á vinstri akrein, hengur fyrir aftan einhvern bíl með HAZARD-ljósin á ! :roll: :lol:

Flestir blikka nú bara ljósunum..

Hef aldrei séð annað eins rugl.

Löggan var svo nokkrum bílum framar, hehe, hann vissi ekki af því býst ég við.
Frikki
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 282
Joined: Mon 30. Jan 2006 22:34

Postby gunnar » Tue 27. Mar 2007 12:07

Veist nú hvernig rafkerfið er í VW, ætli hann hafi ekki ætlað að blikka hann en þetta komið í staðinn. :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Einsii » Tue 27. Mar 2007 12:12

Eða kanski var þetta eitthvað neyðartilfelli og hann hefur verið að reyna að gera vart við sig með "neyðarljósum"
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby mattiorn » Tue 27. Mar 2007 12:13

á maður þá ekki að hengja hvítan fána á bílinn sinn eða eitthvað?? :roll:
User avatar
mattiorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1908
Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Location: Akureyri

Postby ///M » Tue 27. Mar 2007 12:33

mattiorn wrote:á maður þá ekki að hengja hvítan fána á bílinn sinn eða eitthvað?? :roll:


ert þú alltaf með hvítan fána í rassvasanum??
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby mattiorn » Tue 27. Mar 2007 12:56

///M wrote:
mattiorn wrote:á maður þá ekki að hengja hvítan fána á bílinn sinn eða eitthvað?? :roll:


ert þú alltaf með hvítan fána í rassvasanum??


oohh...
User avatar
mattiorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1908
Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Location: Akureyri

Postby Kristjan » Tue 27. Mar 2007 13:02

///M wrote:
mattiorn wrote:á maður þá ekki að hengja hvítan fána á bílinn sinn eða eitthvað?? :roll:


ert þú alltaf með hvítan fána í rassvasanum??


Hvítur bolur virkar ágætlega til dæmis.

En ekki skamma Matta þetta eru jú reglurnar varðandi þetta.

Svo verður maður að hringja í lögguna og fylla svo út skýrslu eftir að maður gerir svona.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby ///M » Tue 27. Mar 2007 13:06

Kristjan wrote:
///M wrote:
mattiorn wrote:á maður þá ekki að hengja hvítan fána á bílinn sinn eða eitthvað?? :roll:


ert þú alltaf með hvítan fána í rassvasanum??


Hvítur bolur virkar ágætlega til dæmis.

En ekki skamma Matta þetta eru jú reglurnar varðandi þetta.

Svo verður maður að hringja í lögguna og fylla svo út skýrslu eftir að maður gerir svona.


ég er ekkert að skamma hann bara benda á að fólk er ekki alltaf með dót á sér sem gæti virkað sem hvítur fáni og það er nú ekki alltaf tími til að fara grafa upp svoleiðis dót ef einhver er alvarlega veikur eða slasaður... þá getur maður notað hazardinn, háuljósin og flautað eins og hálfviti til að fólk færi sig og þá er frekar aulalegt að einhverjir séu að hlæja sig mátlausa...
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby zazou » Tue 27. Mar 2007 13:07

gunnar wrote:Veist nú hvernig rafkerfið er í VW, ætli hann hafi ekki ætlað að blikka hann en þetta komið í staðinn. :lol:

:rollinglaugh: :lol2:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Frikki » Tue 27. Mar 2007 14:16

hahaha, þið eruð snillingar :rollinglaugh:

Treystið mér ég var nokkuð samferða manninum niður Ártúnsbrekkuna og hann var einn í bílnum og ekkert hvítt útum gluggann á honum :lol:

Bara flýta sér eitthvað á bláa "sportbílnum" sínum.

Ég lýsi hér með samstöðu við svarið frá Gunnari.

gunnar wrote:Veist nú hvernig rafkerfið er í VW, ætli hann hafi ekki ætlað að blikka hann en þetta komið í staðinn. :lol:
Frikki
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 282
Joined: Mon 30. Jan 2006 22:34

Postby Geirinn » Tue 27. Mar 2007 14:36

Varðandi hvít merki á bílum.... ég hef heyrt að maður geti í sárafáum tilfellum réttlætt að keyra undir hvítum fána "eins og fáviti", þ.e. keyrt yfir löglegum hraða og brotið umferðarreglur.

Í þeirra augum er í flestum tilfellum best að keyra á löglegum hraða því maður stofnar jú mörgum í hættu ef maður er með einhvern glundroða.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby BMWaff » Wed 28. Mar 2007 09:50

///M wrote:
Kristjan wrote:
///M wrote:
mattiorn wrote:á maður þá ekki að hengja hvítan fána á bílinn sinn eða eitthvað?? :roll:


ert þú alltaf með hvítan fána í rassvasanum??


Hvítur bolur virkar ágætlega til dæmis.

En ekki skamma Matta þetta eru jú reglurnar varðandi þetta.

Svo verður maður að hringja í lögguna og fylla svo út skýrslu eftir að maður gerir svona.


ég er ekkert að skamma hann bara benda á að fólk er ekki alltaf með dót á sér sem gæti virkað sem hvítur fáni og það er nú ekki alltaf tími til að fara grafa upp svoleiðis dót ef einhver er alvarlega veikur eða slasaður... þá getur maður notað hazardinn, háuljósin og flautað eins og hálfviti til að fólk færi sig og þá er frekar aulalegt að einhverjir séu að hlæja sig mátlausa...


Alveg sammála ///M hérna fólk heldur alltaf að allir sem gera eitthvað svona séu bara ofstressaðir ökuníðingar, en það hafa nú komið þónokkrar sögur af fólki í neið og ENGIN færði sig heldur hægir frekar á til að "pirra"????? Hvað með það þó eitt vitleysingur vilji keyra einsog asni? bara leyfa honum að komast frammhjá...
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby Geirinn » Wed 28. Mar 2007 10:56

Besta leiðin til að komast pottþétt fram úr öðrum bíl er að keyra upp í rassgatið á honum.

Ég verð ógeðslega pirraður þegar ég er blikkaður af öðrum bíl... en oftar en ekki fær maður man-made radarvara ef maður hleypir bílunum fram úr.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby Chrome » Wed 28. Mar 2007 11:02

ég hef nú þurft að framkvæma neyðarakstur og var nú ekki með einhverja hvíta dulu á mér lét bara Hazardin ganga og notaði flautuna :) svo var gaf ég bara stutta skýrslu og lögreglan fékk staðfestingu frá lækni.
Annars verð ég alveg nett pirraður þegar einhver bombar alveg í rassgatið á mér (geri mér alveg grein fyrir hversu tvíræð þessi lína er :lol: ) lenti í því um daginn að ég sá ekki framljósinn hjá einhverju greyi sem var að drífa sig :roll: og einsog margir vita er bíllinn minn ekki sá hæðsti að aftan :lol:
...Mazda 323F 98'...

S.S.S
"We are all born ignorant, but one must work hard to remain stupid." -Benjamin Franklin
User avatar
Chrome
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1739
Joined: Tue 17. Feb 2004 15:36
Location: Kópavogur

Postby Angelic0- » Wed 28. Mar 2007 12:32

Ég hef einmitt keyrt neyðarakstur með sjúkling í bíl sem að var að fá alvarlegt flog.

Rosalega erfitt að einbeita sér að akstrinum við svoleiðis aðstæður, var í Vogum og fékk fylgd lögreglu þar sem að hún kom til móts við mig. Síðan var fyllt út stutt skýrsla, en ég var bara með hazzard-inn gangandi, það var ekkert hvítt til taks í bílnum!
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests