brusi wrote:
Angelic0- wrote:
Eitthvað sem að er mjöööög ódýrt.. en gangfært og á númerum

E30... E36... E21... E28... hvað sem er.. svo lengi sem að það er á skít og kanil

Má vera hrikalega ryðgað..... þarf bara að lifa fram á sumarið....
haha bíllinn hans grétars er tilvalinn í þetta

(þetta er sævar)
Er ekki alveg klár hvort þetta sé skot til mín eeen já ég heiti grétar og er einmitt að reyna að losna við bílinn minn

BMW 316i e36 '92 árgerð. Hann er keyrður 175k(eða um það bil) og átti að fara í skoðun í feb(er semsagt með '07 miða). Það er rið hingað og þangað en ekkert of alvarlegt. Ég er nokkuð vissum að það leki stýrisvökvi, fóðringar séu farnar að framan og eitthvað skrítið hljóð í fjöðuruninni að aftan og þar sem ég hef ekki nóga þekkingu á bílum til að gera við hann er ég að reyna að losna við hann

. Annars fékk ég félaga minn til að hjálpa mér að skipta um tímareim, heddpakkningu, vatnsdælu, stýrisreim, viftukúplningu, knastás og margt fleira. Svo það er þó búið að gera eitthvað við hann.
endilega hafðu samband á mailið gretarmatt hjá gmail punktur com ef þú hefur áhuga.