Er í vandræðum með skiptinguna í E34 540. Hann fer afturábak í neutral, og festist í drive þegar hann er kaldur. Þegar hann hitnar er svo enn fyrirstaða í drive en þegar hann skiptir sér upp þá er allt í lagi þ.e. efri gírarnir virka vel. Inn á milli er hann svo allveg í lagi.
Ég er búinn að láta skipta um olíu og síu en heyrði einhverstaðar að þetta hefði eitthvað með ventlaboxið og bakkventilinn að gera. Er einhver hér sem kannast við vandamálið og veit hvert best er að fara til að láta athuga þetta.


