Bílablað Morgunblaðsins

Hér skal spjalla um BMW.

Bílablað Morgunblaðsins

Postby hlynurst » Wed 30. Jul 2003 18:13

Ég var að renna í gegnum þetta í dag og sá ýmislegt áhugavert.

Veit ég að Ingvar (Bebecar) er ötull talsmaður V-Power og í blaðinu var okkurat grein um það. Þar er bent á heimasíðu FÍB og fréttin þar hljóðar svona orðrétt.:

V-Power bensín - engin umframorka
Samkvæmt viðamikilli rannsókn sem ADAC, systurfélag FÍB í Þýskalandi hefur gert er Shell-V-Power bensínið nánast gagnslaust hvað varðar það að gera bíla aflmeiri samanborið við það að aka bara á venjulegu 92 oktana bensíni. Auglýsingar Shell þess efnis að þær auki bílum afl eru að mati ADAC marklausar. ADAC gerði tilraunir á þessu á fjórum gerðum bíla. Niðurstöðurnar eru í stuttu máli þær að engar marktækar breytingar mældust á afli og snerpu bílanna.
Rannsóknarmenn ADAC töldu sig geta merkt smávægilega aflaukningu (um 2%) í VW Golf 1.4 16V og í Porsche Boxter, en telja það of lítið til að geta talist tölfræðilega marktækt. Á hinn bóginn töldu þeir sig geta merkt eins prósents minnkun afls í BMW 216i og í Audi A3 2.0 sem sömuleiðis er ómarktækt tölfræðilega.
Upplýsingar þessar hafa vakið mikla athygli í Þýskalandi og hafa þær verið framarlega í fjölmiðlum Beðið er viðbragða frá Shell í Þýskalandi vegna málsins.


Þetta kemur þó nokkuð á óvart og verður gaman að sjá hvernig þessi mál þróast. Samt hef ég ekki ennþá séð 216i (316i?)og tel þetta vera stafsetningarvillu. Einnig var reynsluakstur á´nýjum 330xi sem mér fannst mjög gaman að lesa um þar sem ég las ekki greinina þegar þessum bíl var reynsluekið í DV.

Að lokum var ég að lesa grein um Mercedes Benz... þar kom fram að þeir hafi lent í 26. sæti í könnun hins virta fyrirtækis JD Power í Bandaríkjunum 2003. Voru í 1.sæti árið 1990...

:shock:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Haffi » Wed 30. Jul 2003 18:15

Já heimurinn versnandi fer.... mér er sama hvað fer á minn á meðan hann gengur.. (BTW HVAÐA MINN???????)
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Benzari » Wed 30. Jul 2003 18:26

Munurinn er þónokkur á eyðslu ef notað er V-power í stað 95 oktana hjá Orkunni.


Ekki góðar fréttir fyrir Benz, en samt er mikil söluaukning hjá þeim í Bandaríkjunum það sem af er þessu ári.

Ætli maður finni sér ekki einhvern Benz framleiddan fyrir '96 eða láti M5 drauminn rætast :!: :?: :!: :roll: (samt lítur út fyrir að sá hvíti verði brúkaður áfram næstu 2-3 árin)

Edit: Hmmm, rétt hjá þér Svezel.
Last edited by Benzari on Wed 30. Jul 2003 18:37, edited 1 time in total.
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby Svezel » Wed 30. Jul 2003 18:30

Benzari wrote:Munurinn er þónokkur á eyðslu ef notað er V-power í stað 92 oktana hjá Orkunni.


Þú átt væntanlega við 95okt
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby SE » Wed 30. Jul 2003 18:56

Mér finnst ég finna mun á eyðslunni á mínum á V-Power og svo á 95 okt. Ég get ekki sagt að ég finni mun á afli en eyðslan er minni á V-power.

Það hafa lengi verið skiptar skoðanir um kosti V-Power og mikið hefur maður lesið um V-Power bæði hér og á huga og sitt sýnist hverjum. Mér minnir nú að margir hafi prófað V-power vs. hefðbundið bensín á "vísindalegan" hátt og ef ég man rétt fundu margir mikin mun, aðrir minni eða engan.

Það verður áhugavert að sjá svör Shell manna við þessari gagnrýni. ADAC gat mælt 2% aflaukningu á VW Golf 1.4 - er það ekki ágætt veitir a.m.k. ekki af.......
SE
Porsche 911 Carrera 3.2 ´85
Mercedes Benz ML 270 CDI ´00

Jeremy Clarkson wrote:It's pouring down with rain because not enough people have Range Rovers.
SE
Kassabílstjóri
 
Posts: 158
Joined: Sun 13. Jul 2003 22:43
Location: Kópavogur

Re: Bílablað Morgunblaðsins

Postby benzboy » Wed 30. Jul 2003 19:18

hlynurst wrote:Að lokum var ég að lesa grein um Mercedes Benz... þar kom fram að þeir hafi lent í 26. sæti í könnun hins virta fyrirtækis JD Power í Bandaríkjunum 2003. Voru í 1.sæti árið 1990...

:shock:

Var einmitt búinn að sjá þetta (var þetta ekki bilanatíðni á fyrsta ári?) - mikið er gott að eiga "gamlan" Benz :D
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

Re: Bílablað Morgunblaðsins

Postby Svezel » Wed 30. Jul 2003 19:26

benzboy wrote:
hlynurst wrote:Að lokum var ég að lesa grein um Mercedes Benz... þar kom fram að þeir hafi lent í 26. sæti í könnun hins virta fyrirtækis JD Power í Bandaríkjunum 2003. Voru í 1.sæti árið 1990...

:shock:

Var einmitt búinn að sjá þetta (var þetta ekki bilanatíðni á fyrsta ári?) - mikið er gott að eiga "gamlan" Benz :D


Þú ert nú líka á einu því sverasta sem Benz hefur gert, alvöru tæki :wink:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby hlynurst » Wed 30. Jul 2003 23:20

Hehe... gömlu bílarnir eru traustir. :wink:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Wed 30. Jul 2003 23:40

Já, ég rak einmitt augun í þetta tvennt. Ég hef einmitt kvatt menn til að prófa þetta bara sjálfa.

Það er ekki voðalega erfitt að selja mér þetta, það er framleitt hverskyns race bensín um allan heim og þetta er bara eitt af því - það þarf engin að segja mér að ökumenn og vélvirkjar með margra ára reynslu noti þetta af gamni sínu.

Svo á ég líka einhversstaðar könnun frá danska "FÍB" sem sýnir akkúrat hið gagnstæða, aflaukningu á öllum bílum (minnir á bilinu frá 2%-5%) og auðvitað fullkomna hreinsun á vélinni nokkuð sem ekki er minnst á þarna.

Að lokum má minnast á að bílablöðin í bretlandi nota öll þeirra "V-Power´" á reynsluakstursbílana, en þar heitir það Shell Optimax.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby SE » Wed 30. Jul 2003 23:40

hlynurst wrote:Hehe... gömlu bílarnir eru traustir. :wink:


Tek undir það.
SE
Porsche 911 Carrera 3.2 ´85
Mercedes Benz ML 270 CDI ´00

Jeremy Clarkson wrote:It's pouring down with rain because not enough people have Range Rovers.
SE
Kassabílstjóri
 
Posts: 158
Joined: Sun 13. Jul 2003 22:43
Location: Kópavogur


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 47 guests