Get alveg tekið undir það að nýji STi togar rosalega vel og er mjög fínn á ferðinni líka.....eeeeeennn M5 er bara með alveg rosalega millihröðun, það er engin spurningarmerki hægt að setja við það.
Ég lenti í spyrnu við M5 þegar ég var úti, ég var reyndar með 3 farþega en var samhliða M5 alveg út annan gír. Þarna verður að taka til greina að ég hafði 100% grip en M5 ekki, spyrnan náði ekki lengra en 2. gír og ég veit af minni reynslu að M5 hefur þetta á ferðinni. Einfalt mál.
Það koma alltaf einhverjir spámenn með rosalegar sögur af spyrnum millum STi og M5, það mun aldrei breytast.....staðreyndin er bara sú að stock vs. stock, þá hefur M5 þetta eftir 2. gír svo ég tali nú ekki um 4. gír

það er alveg brjálæðislega gaman að finna fyrir hröðuninni í 4 gír
