Ég mæli með því að þú látir glerblása eða hreinlega plastblása felgurnar hjá þér. Sandblástur hentar afar illa á álfelgur vegna þess að áferðin verður frekar ljót þar sem að sandurinn á það til að "éta" sig aðeins lengra inn en glerið eða plastið. Pabbi minn var að fá felgur frá Pólýhúðun og þær eru alveg hreint glæsilegar, virðast vera alveg frábær vinnubrögð og vonandi verður endingin á þessu góð.
Farðu með felgurnar á dekkjaverkstæði, láttu affelga og hentu þessu í pólýhúðun. Ef að felgurnar eru ekki skemmdar á þann hátt að það þurfi að punkta í þær að þá er þetta straight-forward dæmi hjá þér
