Ég er búinn að leita að C5 í 3 ár og var nærri búinn að kaupa alveg eins bíl fyrir 1 og hálfu ári en ég rétt missti af honum. Ég er svolítið pikkí á þessa bíla og það kom aldrei neitt annað til greina en að taka 2001 bíl eða nýrri. En 2001 bíllinn er með Second-Generation Active Handling system sem er nú standard í öllum Corvettum. Auk þess er 2001 bíllinn 350 hestöfl í stað 345 hö í 97-00. Mesta breytingin var þó aukið tog á lægri snúning, en með smávægilegum breytingum og auknu loftflæði var unnt að gera sjálfskiptan 01 bíl jafn sprækan og beinskiptan 00 bíl.
Þetta er vel útskýrt hér
• 300 lb-ft is delivered at 1,000 rpm - 400 rpm earlier than before
• 320 lb-ft is delivered at 1,400 rpm - 800 rpm earlier than before
• 340 lb-ft is delivered at 2,500 rpm - an amazing 1,400 rpm earlier than before
• Maximum torque of 360 lb-ft for automatics, 375 lb-ft for manuals, arrives at 4,400 rpm.
Planið var alltaf að kaupa beinskiptan bíl en þegar ég datt niður á þennan gat ég ekki sett það fyrir mig þar sem Navy blue metallic hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og felgurnar undir bílnum eru að mínu mati þær flottustu sem GM bauð uppá á þessum tíma.
Bíllinn er mjög vel búinn og má þar nefna
Bose hljóðkerfi
12 diska magasín
Skjávarpi sem varpar hraðamæli og öðrum upplýsingum á framrúðuna
Rafmagn í öllu með minni
Tölva sem sýnir fáránlegustu upplýsingar
Þessi bill er algjör ruddi og ólíkur öllum +300 hestafla bílum sem ég hef prófað. Hröðunin er fáránleg og frekar funky tilfinning þegar rassinn fer að dansa á 90 km hraða
AddiSTI er mikill snillingur en hann tók meðfylgjandi myndir





