ValliFudd wrote:
bebecar wrote:
Ekki það að ég ætli að vera að spilla hallelúja kórnum hérna en hvar kemur það fram að konan sé feministi?

Ég heyrði reyndar að hún tengdist Bríet og þessu dóti ekkert.. Þetta var víst "áskorun" á femínista... hmmm....
Anyhow.. heimskulegt hvernig svo sem á það er litið.. Dauðvorkenni stelpugreyinu úr blaðinu þar sem hún fór líklegast verst útúr þessu rugli..
Hún er nú reyndar fjölmiðlafræðingur og hefur líklega bara túlkað myndina rangt, mögulega vegna þess að hún er menntuð í USA þar sem myndakúltur er annar en á Íslandi.
Viðbrögðin eru svo í harkalegri kanntinum þegar dómurinn er felldur en kæmu kannski ekki á óvart ef túlkunin á myndinni væri rétt, sem hún er ekki að mínu mati.
Við fellum öll dóma reglulega sem ekki eiga sér neina stoð og líklega gerðuð þið það núna (ef hún t.d. er ekki feministi). Sjálfum fellur ykkur illa þegar dómar eru felldir um BMW eigendur, t.d. í blöðunum... í því ljósi verður þessi þráður dálítið fyndinn.
Og svo er auðvitað hægt að deila um hvort það að vera feministi sé eitthvað slæmt eins og látið er í veðri vaka. Samkvæmt kenningunni eru feministar jafnréttissinnar.
Það er helst að barátta þeirra gegn því að konur séu sýndar sem kyntákn hafi farið eitthvað öfugt ofan í marga og skipast slík barátta á bekk með baráttu ýmissa flokka og þrýstihópa sem reyna að fá annað fólk til að hegða sér eins og það sjálft - t.d. núverandi formaður VG sem ekki vildi leyfa okkur að drekka bjór. Frelsi en ekki helsi segi ég nú bara.
Bara mínir fimm aurar sko...
Annars minnir þessi mynd mig bara á Sollu Stirðu sem virðist vera í takt við dúkkuþemað hjá Smáralindinni og því passar þetta allt frekar sakleysislega saman og sé ég ekkert athugavert við þessa auglýsingu þó lifandi dúkku orðalagið (ef það virkilega stendur þar en ég hef ekki kannað það sjálfur) hefði ég ekki notað sjálfur.