
zazou wrote:http://blogg.visir.is/denniFréttablaðið og Morgunblaðið voru borin í hús í dag. Inni í blöðunum má sjá auglýsingu um mann á miðjum aldri í vetrargalla í velþekktri stellingu úr klámmyndum. Hann er tilbúinn til þess að taka einhverja aftan frá. Með munninn hálfopinn býður hann lesendum af kvenkyni að ímynda sér hann setja ska…nn á sér upp í einhverja.
Auglýsingin blandar saman sakleysi miðaldra mannsins (maðurinn er með verkfæri í höndum og hjálm á höfði) við tákn úr klámi (líkamsstellingin, opni munnurinn og skítugu
hendurnar). Útkoman verður hin saklausi hórkarl, hin mikli töffari sem í einni svipan verður klámmyndakóngur. Er slík notkun á táknum, sem eru flestum fullorðnum vel kunnug, viðeigandi í blaði sem ætlað er almenningi?
Skilaboðin sem Fréttablaðið og Morgunblaðið senda karlmönnum eru þessi: Verið drottnandi kynlífskarlar.
———————-
Pistill þessi er nær orðréttur eftir pistli Guðbjargar H. Kolbeins sem birtist á síðu hennar. Hann fer hér á eftir til að lesendur átti sig á samhenginu…ef eitthvað slíkt finnst í pistli hennar. Auglýsingin frá Alcan á ekkert skylt við klám né misnotkun en á jafnvel við og tengin Guðbjargar við Smáralindarbækling.


mattiorn wrote:Bjornvil, við ættum að senda þennan avatar þinn með undirskriftalistanum
ömmudriver wrote::shock: Fallega helvítis steypan sem vellur út úr þessari kellingu.


Users browsing this forum: No registered users and 8 guests