Sökum þess að 533i verkefnið er að fara á fullt, verður að rýma aðeins til.
Ég verð þar af leiðandi að selja þennan þétta og góða E28 bíl.
Þessi bíll er lítið keyrður og ótrúlega heill miðað við aldur. Búið að endurnýja mikið í honum síðastliðin tvö ár.
Fyrir tveimur árum var hann líka endurryðvarinn í holrúmum og undirvagni.
Að bílnum hafa aðeins komið 3 eigendur á undan mér.
Fyrsti eigandi frá 1987-1997, annar frá 1997-2005, þriðji frá 2005-2007.
Spekkar um gripinn......
BMW 518i, E28
Framleiddur 11/86 samkvæmt BMW
Nýskráður 02.10.1987 á Íslandi
Ekinn aðeins 158.400 km
Hvítur (Alpinweiss)
Beinskiptur
Skoðaður 07, næsta skoðun september 2007.
Mótorinn er M10B18 og hann vinnur ekkert smá vel!
14" álfelgur undan E23 umvafin nýjum Yokohama sumardekkjum
14" bottlecaps fylgja með í skottinu, dekkjalausar
Blátt leður (bara fallegt! :Shocked: )
Blá innrétting
Clarion cd, JBL GTO allan hringinn
Það sem búið er að gera fyrir bílinn síðastliðið ár:
Ný kúpling
Nýtt púst alla leið
Ný vatnsdæla
Það sem ég er búinn að gera síðan ég fékk hann í byrjun febrúar:
Nýir bremsudiskar að framan
Nýir bremsuklossar að framan
Ný bremsudæla og rör v/m aftan
Bíllinn er ótrúlega sprækur og fjöðrunin er eins og ný!
Leðrið er í góðu ástandi og hefur verið almennt hugsað vel um bílinn.
Ég óska eftir tilboðum í bílinn.
Upplýsingar í síma 8440008 (Skúli), einkaskilaboðum eða í email srr at simnet.is
Svo fylgja að sjálfsögðu "nokkrar" myndir með
Biðst velvirðingar á því að myndirnar eru ekki betri. Var bara með símann með mér....