StoneHead wrote:
Ég var að vinna hjá Jarðvélum á Reykjanesbraut, er nýlega hættur.
Þeir eru komnir með buxurnar niður á hælana, og skóflu þar þvert uppí.
Einfaldlega, það er búið að klúðra rosalega miklu í kringum gerð Reykjanesbrautarinnar.
Í fyrra sumar byrjuðu Jarðvélar á tvöfölduninni með kappi, og í vetur voru þeir töluvert á "undan" áætlun.
Svo urðu ýmsar mannabreytingar innan Jarðvéla, þar á meðal eigandaskipti, tækjamannaskipti og svo frammvegis. Það gerði það að verkum að fyrirtækið fór að halla undan fæti, og eins og staðan er núna, þá eru þeir á EFTIR áætlun með tvöföldun Reykjanesbrautar.
Tækin sem eru að gera kartbrautina, voru tekin af tvöfölduninni.
Það sárlega vantar fleirri tæki inn í þetta fyrirtæki, en það vilja fáir lána nýja eigandanum krónur.
Hann skuldar öllum, og bara sem dæmi að þá er EKKERT dekkjaverkstæði sem vill viðskipti við Jarðvélar, því þeir borga aldrei neitt.
Það var ekki til brauð í kaffinu handa starfsmönnunum á tíma því þeir borguðu ekki reikningana við bakaríið.
Svo hafa Jarðvélar fengið undirverktaka til starfa og eiga eftir að borga mörgum þeirra háar upphæðir.
Þetta eru bara nokkur dæmi fyrir utan stefnurnar sem þeir hafa á sig hjá Sýslumanninum.
S.s. þið megið búast við seinkunum á þessu öllu, Jarðvélar eru búnir að skíta uppá bak og rúmlega það.
Þetta er mitt álit á fyrirtækinu.
Vá hvað þetta minnir mig á Fjallasport!!!

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,