Jæja, nú er langþráður draumur loksins orðinn að veruleika í tæka tíð fyrir 35 ára afmælið.
Ég fór til Odense fyrir 2-3 vikum og sótti þar frábærlega vel farinn BMW af gerðinni R100RS - mótorhjól sem er mjög merkilegt í mótorhjólasögunni af í það minnsta þremur ástæðum.
Hjólið sem um er að ræða er frá árinu 1994, ekið 70 þúsund (sem þykir mjög lítið á BMW á þessum aldri - munið að það er sagt að BMW geri mun betri mótorhjól en bíla þannig að hér er eitthvað verulega spes á ferð

).
Þetta er 1000 vél, tveggja strokka, loftkældur boxer (kallaðir airheads á meðan nýju hjólin eru með oilheads). Reyndar gaman að þessu því þá þarf ég bara að eignast 12 strokka boxer frá Ferrari til að hafa átt allar útgáfur
Saga R100RS er merkileg fyrir þær sakir að þetta var fyrsta hjólið sem fékk heila kápu hannað í vindgöngum og er kápan enn talin sú besta (enda erfitt að toppa hana á nútíma hjóli án þess að gera það verulega púkalegt!). Ég get vottað þetta því það er bæði hægt að beygja sig alveg niður og þá finnur maður engan blástur eða jafnvel sitja uppréttir og þá leikur vindurinn mjúkt um höfuðið. Fótum og höndum er hlíft 100%.
Einnig er innbygðir vindkljúfur í kápuna og hún dregur úr áhrifum hliðarvinds um 60% - það kom sér vel í ferðinni frá Odense í gær því það var rok - 15 metrar á sekúndu og sumsstaðar vindkviður kvimleiðar.
Í öðru lagi var þetta allann framleiðslutímann dýrasta mótorhjól í heimi - meðal annars eru rendurnar á tankinum og kápunni HANDMÁLAÐAR!!!
Í þriðja lagi þá held ég að það sé einstætt í mótorhjólasögunni að framleiðandi hefji aftur framleiðslu á mótorhjóli vegna áskorana frá viðskiptavinum:
Hjólið kom nefnilega fyrst á markað árið 1975 og var framleitt til ársins 1985 í óbreyttri mynd nánast - smá tæknilega breytingar voru gerðar á framleiðslutímanum. Þegar BMW hætti framleiðslu og arftakinn K100 tók við varð allt vitlaust. Það vildu ekki allir sætta sig við að fá ekki sambærilegt hjól með boxer vélinni frægu áfram en vél þessi á rætur sínar að rekja til seinni heimstyrjaldarinnar.
Allavega, það leið og beið og þrýstingurinn jókst og BMW endaði með að hefja framleiðslu á þessu hjóli aftur árið 1988 þeim sem höfðu keypt sér Last Edition R100RS árið 1985 til mikillar mæðu. Hjólið fékk reyndar aðra blöndunga þá og missti talsvert af hestunum, það er bara 60 hestöfl, en fékk hellings tog í staðinn og er jafn snöggt og gamla hjólið sem var 77 hestöfl (mengunarvarnir spila stórt hlutverk þarna líka). Hjólið fékk líka nýja afturfjöðrun og sitthvað fleira í endurbótum og eru þessir síðustu boxerar almennt taldir með áreiðanlegustu mótorhjólum í heimi.
Í þessari mynd sem mitt hjól er í var það framleitt til ársins 1995 - óbreytt útlit í hvorki meira né minna en 20 ár sem gæti vel verið einstætt líka!
Gripurinn er svartur, með BMW hliðartöskum og Topp boxi sem samtals rúmar um 60-70 lítra. Á hjólinu er vélarhlíf fyrir heddin, og 12 volta úrtak og stjórntæki er ekki hefðbundin BMW (eins og þeir hafa þetta í dag).
Þessi hjól eru oftast mjög mikið keyrð og nokkuð algeng að sjá hjól með 300 þúsund + á mælinum.
Bíltúrin heim var ágætis test, þetta er fremur hrekklaust í akstri, mjög stöðugt á hraða en ég ók talsverðan tíma á 150 km/klst en var þó mest á 130. Hjólið var nógu þægilegt til þess að ég gat ekið heim 250 km leið án þess að stoppa og verkjaði mig bara í vinstri úlnlið (furðulegt, sá hægri var fínn).
Það á eftir að verða gaman að kynnast þessu tóli, togið er mikið, togar vel í fimmta gír á 150 og virðist eiga nóg eftir - hröðun er þó ekki mikil miðað við mörg jafn gömul hjól - enda er þetta Tourer!
1975
Það verður smá bið á myndum þar sem það snjóaði í dag (ég var heppin að ná þessu heim í tæka tíð) en um leið og rofar til þá koma myndir.
Ein mynd hér - nýkomin heim, 4 gráður og ég bara fínn, var pínku kalt á höndunum, heitt á fótunum hinsvegar enda boxerinn ágætis ofn. það ringdi líka á leiðinni og ég var gjörsamlega þurr - það kom meira að segja sáralítil bleyta á hjálminn, held ég hafi þurrkað 4 sinnum af honum með þurrkublaðinu á vinstri hanskanum á leiðinni.
Og svo gripurinn komin fyrir aftan hús heima
