Skottið harðneitar að opnast hjá mér, semsagt er fast læst, get ekki haggað lyklinum í skránni. Hafði samt alveg notað læsinguna áður en þetta gerðist fyrir ca. mánuði.
Hvað get ég gert til að opna það, þarf nauðsynlega að ná í dót sem er læst þarna inni og já ekkert verra að geta notað skottið yfir höfuð. Er bara málið að fara með þetta til lásasmiðs?


