Eitt skil ég samt ekki á íslandi.. Ef þú gerir eitthvað af þér í USA.. allavega í bíómyndunum.. ert þú ekkert að fara neitt.. En á íslandi er nóg að segja "já ég gerði það" og þá máttu bara fara
Vísir, 15. feb. 2007 07:31
Skemmdarverkapiltar látnir lausir
Piltarnir þrír sem handteknir voru í gær grunaðir um stórfelld skemmdarverk í Hafnarfirði í fyrrinótt játuðu á sig verknaðinn við yfirheyrslur hjá lögreglu og var sleppt í gærkvöldi. Þeir eru á aldrinum 15 til 17 ára og hafa áður komist í kast við lögin. Barnaverndaryfirvöld hafa nú mál þeirra til meðferðar. Tjón af völdum þeirra hefur ekki verið metið að fulllu en ljóst að það hleypur á mörgum milljónum króna.



