Fjarstýringin

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Fjarstýringin

Postby Frikki » Wed 14. Feb 2007 20:50

Langaði bara að deila því með ykkur að ég er farinn að hata "opna skott" takka á fjarstýringunni. Er alltaf að rekast í hann! Kannski er ég bara fífl en mér finnst þetta alveg frekar tilgangslaus takki, þar sem það er ekkert flókið að opna skottið. Myndi skilja þennan takka ef skottið myndi opnast alveg en ekki bara rétt poppa.

T.d. þá var ég að halda á pizzu, ipod, lyklinum og 2L kók úr bílnum áðan og var með lykilinn í hendinni og rakst pizzu kassinn ekki í "opna skott" takkann og ég þurfti að setja pizzuna uppá þak og eitthvað vesen :lol:

Ég segi burt með þennan takka. :evil:
Frikki
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 282
Joined: Mon 30. Jan 2006 22:34

Postby Steini B » Wed 14. Feb 2007 20:56

Ég er líka alltaf að ýta óvart á þennann takka þegar ég er að keyra fyrir Binna... :lol:

En það er bara sniðugt að geta opnað/lokað topplúgu og glugga með fjarstýringunni... 8)
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Postby Henbjon » Wed 14. Feb 2007 20:58

Hjá benz er þetta þannig að þú verður að halda takkanum inni í svona 3 sek þannig það er í lagi að rekast í hann.
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Postby IceDev » Wed 14. Feb 2007 22:33

Ég fíla þennan takka mjög mikið, fínt ef maður sendir einhvern til að sækja eitthvað í skottið, þá opnar maður það bara, hleypir þeim í skottið og labbar í burt


Þarft ekkert að læsa aftur
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby . » Wed 14. Feb 2007 23:11

þetta skotta er meira opið enn lokað hjá mér útaf þessum takka :?
Bonjour 307 2005
BMW M-Zetor 2002
BMW 740 1996
Taxi 1972

BMW er reizing keppnistæki og bensar eru taxar
300.000 km eru nýju 200.000 km
User avatar
.
Getawaybílstjóri
 
Posts: 878
Joined: Tue 21. Jan 2003 13:43
Location: Reykjavík

Postby Danni » Thu 15. Feb 2007 07:14

Var vesen hjá mér fyrst þegar ég var að venjast lyklinum. Ýtti alltaf á þennan takka til að taka bílinn úr lás :lol: (allar merkingar horfnar af lyklinum)

Núna er ég alveg hættur að rekast í þennan takka, bara gerist ekki lengur.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby Frikki » Thu 15. Feb 2007 11:09

Var að lenda í þessu aftur núna, með tösku,ipod og eitthvað drasl í höndunum og rétt held í lykilinn, rekst taskan í lykilinn og "popp" skottið opnast.. :lol:

Þessi hönnun á lyklinum er algjört bull, gamli lykillinn var mikið betri.

Ég var btw að láta panta lykil fyrir mig í gegnum sölumanninn því það fylgdi bara einn lykill með (verður gaman ef bílnum verður stolið einn daginn).

Ég fékk TVÆR fjarstýringar og einn svona plast drasl lykil.

Auk þess var risa box á stærð við harðan disk, sem er einhver stjórnstöð eða eitthvað drasl. Þannig ég þarf að mæta með bílinn kl. 8 á mánudag og leggja hann inn í amk 2 tíma :?

Vesen.
Frikki
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 282
Joined: Mon 30. Jan 2006 22:34


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 79 guests